Vikan leiđ hratt.............Jónína Margrét Arnórsdóttir
Jæja ágætu og dyggu lesendurÞá er rétt að segja aðeins frá hvað á dagana hefur drifið. Ég vann auðvitað eins og vitleysingur í sumar og notaði svo nánst öll frí til að ferðast, þá aðallega við Húnaflóann.
Ég fór á Hamingjudaga á Hólmavík sem vor mis hamingjuríkir sökum veðurs en hitti þar fullt af fólki sem ég hef ekki hitt mjög lengi og það er alltaf skemmtilegt.
Ég fór líka á Bryggjuhátíð á Drangsnesi sem var vel heppnuð, sér í lagi vegna mikillar veðurblíðu og svo hitti maður svo margt skemmtilegt fólk.
Á Hvammstanga var svo Unglist og það litla sem ég gat fylgst með henni var frábært, gott veður og mikið af skemmtilegu fólki.
Strax eftir Verslunarmannahelgi fór íg í 8 daga sumarfrí sem ég eyddi í Reykjafirði á norður-Ströndum. Þetta var alveg dásamlegt líf, farið í nokkrar gönguferðir og á hverjum degi í heita sundlaugina. Ekki spillti fyrir hversu skemmtilegt fólk var með í ferðinni.
Í ágúst skipti ég svo um vinnu og hóf störf á Skólabúðunum á Reykjum við kennslu.
Ég lét mig svo ekki vanta á Reykhóladaginn sem var haldinn í leiðindaveðri en var vel heppnaður að öðru leiti.
Ég dreif mig svo heim í smalamennsku 20. september og gladdi bræður mína með stjórnsemi minni og skipulagshæfileikum ;)
Annars er allt við það sama hjá mér og ég hef það bara fínt.
bbíb