Gríðarlega er ég vinnusöm.............Jónína Margrét Arnórsdóttir

Datt í hug að láta vita að ég er á lífi. Ég er að vinna mikið og ekki með tölvu heima svo bloggið er nokkuð stopult hjá mér.

Það er allt sæmilegt að frétta, ekki annað hægt í svona góðu veðri og maður búinn að fara í heita pottinn og svona og ná sér í nokkrar freknur.

Ég missti af hátíðahöldum í gær þegar haldið var upp á 10 ára afmæli Húnaþings vestra. Ég sleppti líka að fara í kvennahlaupið þetta árið því ég er svo slæm í hnjánum (ellimerki???).
Nú er bara að þrauka sumarið og fara svo í aðgerð í haust og vona að maður verði eins og nýr og geti stefnt að maraþoninu á næsta ári í staðinn :)

Nýji bíllinn minn er æði, reyndar svo góður að ég var tekin fyrir of hraðan akstur um daginn :(
En nú stefni ég að því að verða rík og fyrsta aðgerðin í þá átt er að keyra aldrei yfir 90 km hraða í Húnavatnssýslunum :)

Svo ætla ég að reyna að setja niður kartöflurnar í kvöld ef það rignir ekki eldi og brennisteini. Það var svo frábært að það kom maður og bauðst til að stinga upp fyrir mig kartöflugarðinn um daginn og gerði hann svona líka flottann.

En nú verð ég að fara að vinna, það þýðir ekkert að hanga í tölvunni í vinnunni.

bbíb

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...