spennandi fréttir ;)Jónína Margrét Arnórsdóttir
Ég verð að láta ykkur vita að það er eitthvað mjög spennandi á gangi hjá mér (úlala). Það kemur betur í ljós á næstu dögum ;)
bbíb
Söngvarakeppnin búin !!!Jónína Margrét Arnórsdóttir
Jæja, þá er söngvarakeppnin búin. Mér fannst þetta mjög skemmtileg keppni og lang flestir stóðu sig vel þó að auðvitað klikki alltaf eitthvað. Ég til dæmis ákvað að syngja aðeins á vitlausum stað ofan í hana Tótu. Tóta kom sem sagt inn í atriðið fyrir Unni (raddlausu) systur sína á föstudaginn þannig að æfingatíminn okkar var mjög stuttur en hún stóð sig eins og hetja. Við ákváðum líka að breyta búningunum okkar á laugardeginum því við ætluðum að vera í öllu svörtu en svo var bakgrunnurinn allt í einu orðinn svartur og þá hefðum við horfið. (Ekki sennilegt með mig reyndar, djöfull er maður alltaf feitur á myndum
). Úrslitin komu mörgum á óvart en ég held samt að það hafi verið mjög sniðugt að fá einhverja ókunnuga í dómnefndina sem komu þarna inn alveg hlutlausir (þó sumir vilji meina að Gummi á Ósi hafi verið búinn að segja þeim til
).
alla vega held ég að þeir sem fengu verðlaun hafi verið mjög ánægðir. Guðrún Ósk enn í öðru sætinu, eru þetta álög????
Besti búningur: Brynjar (hann var í ljótari fötum en ég)
Besta sviðsframkoma: Guðrún Ósk og Sveinbjörg (og allir strákarnir) Mjög skemmtilegt atriði
3. sætið: Hulda Signý - Strax í dag
2. sætið: Guðrún Ósk og Sveinbjörg - Fljúgðu hærra
1. sætið: Elín, Daði og Solla - Förum saman í ærlegt sumarfrí
Mér fannst reyndar verst að Elín Ósk skyldi ekki fá verðlaun, hún var rosalega góð með uxahryggjarhalanegrablómkálssveppasúpuna en svona er lífið, það eru ekki allir sigurvegarar. Það er samt svo gaman að taka þátt þó stemningin hafi verið í minna lagi þetta árið að einhverjum ástæðum.
Annars er ég búin að vera að vinna mikið og mikil vinna framundan, sem er mjög gott, þá hlýtur maður að vaða í seðlum (NOT)
Nenni ekki að skrifa meira í bili, bææææ.........
Söngvarakeppnin á morgun ;)Jónína Margrét Arnórsdóttir
Ég er farin að hlakka mikið til, þetta er svo skemmtilegt. Ég set hér inn textann svo þið getið æft ykkur að syngja með (það mæta nefnilega svo margir af mínum vinum og ættingjum).Grjónó group kemur til með að skemmta sér vel, svo mikið er víst ;)
Berum út dívananaÞað er þokkalegt veður og vindurinn blæs út á haf,vonandi hangir hann þurr eitthvað fram yfir helgi.En ef hann skyldi nú rigna og allt myndi fara í kafþá eigum við sjóstakka, sundföt og reknetabelgi.Nú ríður á að drífa sigrakleiðis framúr, í fötin og beint inn í dal… Berum út dívanana….berjum í brestina, tjöldum og tökum svo lagið.Berum út dívanana,kommóðu, sænguföt, ísbox og föðurlandið. Allt virðist klappað og klárt og heimamenn hópast nú að,hústjöldin brosa við eigendum sínum á melgrasflötinni.Ekkert virðist til trafala ef allir eru sammála um það að æsa sig hvork’ út af kulda né trekki eðadanshljómsveitinni. Berum út dívanana….berjum í brestina, tjöldum og tökum svo lagið (tra la lala)Berum út dívanana,hermannafermingarbeddum við reddum,dívan með gormum og tekklöppum nöppum, berum út dívanana, dívanana. Nú ríður á að drífa sigrakleiðis framúr, í fötin og beint inn í dal… Berum út dívanana….berjum í brestina, tjöldum og tökum svo lagið (ekkert hangs OK)Berum út dívanana,hermannafermingarbeddum við reddum,dívan með gormum og tekklöppum nöppum, berum út dívanana, dívanana. bbíb