Jónína Margrét Arnórsdóttir
Gaman að sjá að það er að kíkja fólk inn á síðuna hjá manni þrátt fyrir að maður sé ekki að standa sig vel í þessu bloggi. Sumir upplifa þetta sem njósnir en maður á auðvitað ekki að setja á netið það sem maður vill hafa fyrir sig.Ég er að fara til Reykjavíkur á eftir og ætla í bíó í kvöld að sjá myndina Heiðin sem var tekin upp í sveitinni heima. Vona að hún sé ekki of niðurdrepandi, alla vegana er sveitin á mikilli niðurleið
Á morgun flýg ég svo til Danmerkur og fer í heimsókn til Erlu og co. Hún sendi mér sms áðan og var að fara að versla í matinn og vildi fá að vita hvort það væri e-ð sérstakt sem mig langaði í. Ég sagði auðvitað Tuborg og leverpostej
Veðurspáin í Vinding er ekkert spes fyrir þessa daga sem ég verð en þó betri en hér heima (ekki bylur).
Kannski að maður fari á flakk og skoði e-ð í kringum Vejle ef hægt er.
bbíb
Djonni
ps. Ég missi því miður af því þegar Johnny and the rest spila á Síróp, þeir eru magnaðir
i'm the motherfucker princessJónína Margrét Arnórsdóttir
Datt ekki neinn titill í hug svo ég notaði textabút úr lagi sem ég er að hlusta áÉg fór á fyrstu æfingu fyrir söngvarakeppnina á laugardaginn. Fékk sms eftir hálftólf á föstudagskvöldið um að það væri æfing á laugardag frá 13:30 til 16:00 og fannst þetta mjög seint að láta vita. En við (ég, Eva og Unnur) létum bara vaða að syngja þó við værum ekkert búnar að æfa okkur. Nú bíður maður bara spenntur eftir 12. apríl þegar keppnin verður
Berum út dívanana
hermannafermingarbeddum við reddum
dívan með gormum og tekklöppum nöppum.........
bbíb