þungaðir þankar ........ uuu, eða eitthvaðJónína Margrét Arnórsdóttir

Jæja, þá er þorrablótum lokið.  Sem betur fer. Ég er komin að þeirri niðurstöðu að ég þarf að hætta að borða þorramat. Ég er búin að veikjast eftir öll þrjú skiptin sem ég borðaði þennan uppáhaldsmat minn Fýldur Að öðru leiti voru þetta ágætis blót.

Ég er farin að hlakka til helgarinnar. Við í Prjónó förum í húsmæðraorlof og dveljum alla helgina í veiðihúsinu Laxahvammi í Miðfirði. Þar er frábær aðstaða fyrir okkur, að maður tali nú ekki um heita pottinn og saunaklefann Glottandi

Það er búið að plana sumarfríið. Ég fer með hópi á norðurstrandir, nánar tiltekið í Reykjafjörð og verð þar líklega í viku eftir Verslunarmannahelgina. Eygló hringdi í mig í gærkvöldi til að láta mig vita. Ég ætla strax að tryggja mér að eiga frí þá, svo vil ég komast á Hamingjudagana á Hólmavík og jafnvel á Bryggjuhátíð á Drangsnesi. (Líf mitt er greinilega við Húnaflóann Hlæjandi)

Það verður svo bara að koma í ljós hvort draumur minn um hálft maraþon í sumar rætist, það gengur því miður ekki svo vel að byrja. Ég fékk svo illt í annan fótinn við að hlaupa á bretti að ég gafst upp. Í fyrradag var í fyrsta skipti í langan tíma orðið fært til að hlaupa úti en þá er ég með kvef og hósta svo ég verð að bíða aðeins. En mér skilst að það eigi að starta skokkhóp á Tanganum svo ég gleðst yfir því og stefni að því að vera með.

Ég er enn að átta mig á því að það á að fara að fara að ferma hann Arnór Má eftir tæpan mánuð. Mér finnst svo stutt síðan hann var tveggja ára og beit með ánægju í bláa kleinu úr leir og skildi ekkert hvað hún var vond á bragðið Ullandi

Ég var að kópera lag með Stuðmönnum í morgun og pikka upp textann því hluti af Prjónó er að fara að keppa í Söngvarakeppninni þann 12. apríl. Við tökum lagið  Berum út dívanana og ég er alveg að koma mér í gospelsöngfílinginn svo ég geti tekið sóló (HAHAHAHA)

Bið að heilsa í bili

Páskatrip oflJónína Margrét Arnórsdóttir

Ég var að bóka mér flug til Danmerkur, ætla að skreppa til Erlu og co. um páskana. Fékk að vísu ekki flug fyrr en seinnipart fimmtudags og þarf að fljúga aftur heim á sunnudagskvöld en það er betra en ekkert Glottandi

Ég ætlaði á þorrablót í kvöld  á Laugarbakka en því var frestað um viku vegna veðurs. Ég er mjög ánægð með það því ég er að fara á þorrablót annaðkvöld á Hvammstanga og það er betra að dreifa þessu aðeins, maður verður svo súr af þessum mat Óákveðinn

Annars er lítið að frétta nema að auðvitað þurfti minn elskulegi bíll að bila í vikunni, það fór í honum háspennukeflið og ég sá fram á mikil fjárútlát. En guði sé lof, þeir á verkstæðinu fundu gamalt stykki sem þeir gátu sett í sem kostar ekki eins mikið Brosandi Og nú blússa ég um götur bæjarins á mínum fjallabíl eins og ekkert hafi í skorist.bbíb

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...