krunk krunkJónína Margrét Arnórsdóttir

Datt í hug að setja inn örfáar línur hérna. Ég er önnum kafin þessa dagana við að safna hinum ýmsa fróðleik um hrafninn. Það er ekki leiðinlegt að fá svona vinnu, að geta verið í einhverju grúski allan daginn.
Annars gengur lífið þannig séð sinn vanagang, maður hangir mest heima, reynir aðeins að hreyfa sig og skreppur í skotferðir á fundi til höfuðborgarinnar.
Ég rakst fyrir tilviljun í dag á ljósmynd sem Villi litli hafði tekið og er á netinu og sjálfsagt í nýjasta Skessuhorninu. Kannski hann verði frægurSvalur Þetta er slóðin á myndina: http://v2.nepal.is/opna_mynd.asp?myn_id=337043&vef_id=22


úlala. Ég ætla svo auðvitað að fara á Þorrablót eftir rúma viku Brosandi

bbíb

stjörnuspá my assssssJónína Margrét Arnórsdóttir

StjörnuspáTvíburar: Þú ert segull á allt það besta sem lífið bíður upp á. Leyfðu þér að setja markið hærra en þú hefur gert undanfarið. Sérfræðingar geta lagt þér fínar línur fyrir lífið. 

Ég efast stórlega um þessa stjörnuspá !!!

Glaðlegur hversdagleikinn tekinn við...............Jónína Margrét Arnórsdóttir

Jæja, þá er maður farinn að vinna aftur eftir langt jólafrí. Það versta er að maður er búinn að snúa sólarhringnum við og á afar erfitt með að vakna á morgnana, eins og ég ætlaði að passa mig á þessu núna ;)Ég var búin að setja mér markmið löngu fyrir áramót en það var að reyna að komast hálft maraþon næsta sumar þegar Reykjavíkurmaraþonið verður. Ég er alveg að komast í gírinn og vona að ég geti fengið einhverja í lið með mér, það væri gaman að mynda smá hóp sem færi saman í þetta. Palli var einn í heiminum..........

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...