Tukthúsvist??Jónína Margrét Arnórsdóttir

Ég hringdi um daginn út af sektinni minni. Ég spurði hvort ég gæti setið þetta af mér og konan hélt að það væri hægt en hún ætlaði að athuga það betur. Svo hringdi hún í mig og lét mig vita að það væri ekki hægt nema að ég myndi ekki borga sektina, þetta færi í dómsmál og gert yrði fjárnám hjá mér og ekkert fengist upp í það, þá yrði mér stungið í steininn. Ég sem ætlaði að spara mér 50þúsund þar sem ég væri atvinnulaus en svona er lífið :/ Sótti bílinn minn í viðgerð síðasta þriðjudag, fékk Eika til að skutla mér í Brú, fékk far þaðan með Elsu og Óla Bjössa á Akranes, fór með strætó í Mosó og svo sótti Dísa mig þangað og skutlaði mér í Keilufell. Ég var búin að hafa samband við nokkra sem gátu ekki reddað mér með svona stuttum fyrirvara með skutl í bænum, hafði svo samband við Dísu með hálfum hug því hún er stundum svo slæm í bakinu, en auðvitað hljóp hún undir bagga og bjargaði mér JÞað er auðvitað gott að vera komin aftur á bílinn og hann glansaði svoleiðis í gegnum skoðun á fimmtudaginn að sá gamli sem var að skoða brosti allan hringinn. Nú á að fara að taka á því, stefni að því að ná af mér 6 kílóum fyrir jól, er þega búin að missa hálft síðustu viku þrátt fyrir að hafa nær ekkert hreyft mig. Fór í gönguferð í gærkvöldi í mjög fínu veðri en miklum kulda svo nú er ég öll rauðflekkótt í framan. Ætla í körfubolt í kvöld, leikfimi hjá Boggu á þri og fim og skokka og gera Bootcampæfingar mið, fös og lau. Hvíli mig svo á sunnudögum.  bbíb

Hrakfarasaga, fyrsti kafli (og vonandi sá síđasti)Jónína Margrét Arnórsdóttir

Ég verð bara að segja að ég vona að það séu ekki margir eins og ég.

Ég lenti í því um daginn þegar ég var í þreksalnum að detta allt í einu, það var lán í óláni að ég datt út í horn og slapp óslösuð en með skrekk.

Svo fór ég í langþráðar stóðréttir helgina eftir, 29 sept. Í réttinni varð slys sem dró þó nokkuð úr stuðinu hjá fólkinu. Það fótbrotnaði strákur og þegar sjúkrabíllinn kom bilaði hann L

Þá smitaðist ég. Ég fór á ball og þegar ég ætlaði heim kom í ljós að ég var ekki með lykilinn að húsinu, bara bíllyklana. Ég fór þá til Tönju sem er mað aukalykil, hann fannst ekki þar og það kom í ljós að Kalli var með lykilinn með sér í Reykjavík. Þegar ég var að labba út í bíl missti ég fótanna og skall í götuna og lá þar lömuð nokkra stund fyrir aftan bílinn. Það eina sem ég hugsaði um var að vonandi myndi Haddý ekki bakka yfir mig. Þegar ég náði svo að druslast á lappir fór ég inn í bíl og skammaði þær fyrir að taka ekki eftir að ég hefði dottið, ég var skíthrædd. Næst lá leiðin til Jennýjar sem er líka með aukalykil en hún þorði ekki að opna svona um miðja nótt þar sem ég hringdi ekki í hana. Það endaði því með því að Gunna á Söndum tók mig með heim í gistingu. Þegar ég var svo að fara þaðan kom í ljós að nú var ég ekki lengur með bíllyklana. Gunna hringdi í Haddý og þá hafði ég misst lyklana á bílgólfið hjá henni. Ég þurfti því að byrja á að fara inn á Hvalshöfða og sækja lyklana og fór svo til Guðbjargar sem ætlaði svo með mig á Hvol að sækja bílinn minn. Guðbjörg var ekki tilbúin þegar ég kom og meðan ég beið eftir henni missti ég tönn!! Ég reyndi að ná í tannlækninn en það gekk ekki. Restin af deginum gekk ágætlega, ég fékk tíma hjá tannsa kl. 18:30 og var svo heppin að vera boðin í mat um kvöldið.

Laugardaginn 13. okt. þurfti ég að fara í bæinn á fund. Ég brunaði um morguninn og ætlaði svo heim samdægurs til að komast á tónleika um kvöldið. Ég ákvað að hitta Öddu eftir fundinn og við myndum svo fara saman til Millu því hún átti afmæli. Þegar ég er stödd á Kringlumýrarbrautinni, alveg að koma að ljósum þá bilaði bílinn. Kúplingin fór í mask og ég sat og svitnaði í lófunum af hræðslu yfir að ég yrði keyrð niður. Mér tókst á endanum að reka bílinn í fyrsta gír og starta svo og keyra inn í Stigahlíð. Þar komu menn og kíktu á bílinn og sáu að það væri ekkert hægt að gera nema að setja hann á verkstæði. Ég var orðin stranda-glópur í Reykjavík. Ég gat fengið pláss á verkstæði uppi í Keilufelli. Keli bróðir mömmu kom á sunnudeginum til að draga bílinn á verkstæðið. Á Breiðholtsbrautinni bilaði bíllinn hans líka !! Hann ákvað að prófa hvort hann gæti keyrt bílinn minn og rauk af stað á honumog skildi mig eftir standandi á Breiðholtsbrautinni eins og aula og fór í þokkabót með töskuna mína með símanum. Ég þurfti svo að stýra bílnum hans þegar kom bíll til að draga hann burt úr aðalumferðinni. Svo biðum við eftir Kela. Hann kom með töskuna en sagðist  ekkert hafa munað hvert í Keilufellið bíllinn hafi átt að fara svo hann skildi hann bara eftir þegar hann hefði beygt inn í götuna. Svo var bíllinn hans dreginn í Heklu og mér svo skutlað til Öddu í Stigahlíðina. Adda fór svo með mér svo ég gæti komið bílnum á réttan stað í Keilufellið. Þá var ekki lengur hægt að koma honum í gang. Við ákváðum að reyna að ýta honum en gáfumst upp því það var upp í móti. Til allrar lukku mundi ég allt í einu að Haddý frænka mín býr þarna í götunni og maðurinn hennar kom út og dró bílinn restina af leiðinni.

Viðgerðin á bílnum kostar ekki minna en 50þúsund og enn er ekki byrjað að gera við hann. Ég er aðeins að vinna á Laugarbakka þessa dagana svo það er erfitt að vera bíllaus. Maður er endalaust að snapa far með hinum og þessum.

 

Af hverju er lífið svona ömurlegt, ætli það sé skárra í Zimbabwe??????????

 

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...