ups and downs.............Jónína Margrét Arnórsdóttir

Ég skrapp heim í sveitina á laugardaginn og fór aðeins að athuga berjasprettu. Ég tíndi alveg góðan slatta en aðalbláberin verða örugglega orðin fín á næstu helgi eða svo. Á sunnudeginum tókst mér að fá mömmu og pabba með mér Drangsneshringinn. Það var ægilega fallegt veður og gaman að keyra um. Við fórum til Sunnu og fengum kaffi en núna var hún bara með 2 heimabakaðar sortir, hefur sjálfsagt verið miður sín yfir hvað þetta væri lélegt hjá henni. Hún er svo mikil ofurhúsmóðir!!! Á eftir fórum við til Hólmavíkur til Heiðu. Þar vorum við í kvöldmat og svo rölti ég til Elsu og stoppaði aðeins hjá henni. Á mánudagsmorguninn rifum við pabbi okkur upp svo við næðum að fara nýja veginn sem er verið að gera yfir í Arnkötludal áður en vinnuflokkurinn mætti á svæðið. Það var mjög gaman, þeir eru komnir svo ótrúlega langt. Þegar við vorum á leiðinni til baka var einn maður mættur til vinnu. Pabbi stoppaði og spjallaði aðeins við hann og sagði meðal annars að hann hefði fengið leyfi hjá Bessa. Ég var dálitla stund að fatta brandarann. Hélt fyrst að það væri einhver Bessi sem væri að vinna þarna en fattaði svo að það var bessaleyfi sem hann hefði tekið sér J Eftir hádegi fórum við út að Reykhólum með úldin skott fyrir Villa og svo með æðardún á Miðhús. Svo fór ég heim til mín. Þegar ég kom heim var ástandið orðið alvarlegt í skólpmálunum, allt að stíflast aftur. Ég fór í gær og hafði upp á pípara sem kom og athugaði málin. Stuttu seinna var komin grafa í garðinn til að grafa upp til að finna einhverjar leiðslur. Leiðslurnar eru allar á mjög dularfullum stöðum og svo kom líka í ljós vatnsleki. Ég vona að þetta verði ekki sagan endalausa og að skolpmálin komist í lag við fyrsta tækifæri, það er leiðinlegt að þurfa að banka upp á í öðrum húsum og spyrja hvort maður megi fara á klósettið????????

Ein að kafna……………….

SkemmtilegtJónína Margrét Arnórsdóttir

Fór í frábæra gönguferð í fyrrakvöld með 5 skemmtilegum konum. Ferðin var algjört ævintýri því í henni rákumst við á arnarhreiður með 2 ungum og mamman (assan) sveimaði illileg yfir okkur og gargaði hátt. Tæpum klukkutíma síðar kom ég auga á lamb sem var fast í neti sem sett hafði verið á girðingu því þar flæðir þegar er stórstreymt. Aumingja lambið var búið að flækja hornin verulega illa í netinu og líka aðra framlöppina. Ég brunaði strax af stað niður í átt að lambinu en það vildi ekki betur til en svo að ég flaug á hausinn en það varð ekkert alvarlegt. Við náðum svo að losa greyið og héldum svo áfram göngu okkar. Nú var komið að einstigi sem var ekkert sérstaklega þægilegt yfirferðar í rigningunni en allt hafðist þetta þó að lokum. Þegar við vorum nýlagðar af stað í bílnum eftir gönguna flugu upp úr vegkantinum heilar 3 uglur. Gangan sjálf tók um 3 og hálfan tíma en aksturinn í kringum hana hefur tekið um 2 tíma. Við fórum af stað frá Hvammstanga kl 18:15 og ég kom heim 23:45 rennandi blaut en mjög ánægð eftir ferðina. Svona á lífið að vera………………….

júhú, loksins komin inn afturJónína Margrét Arnórsdóttir

Ég er orðin dálítið pirruð yfir að hafa ekki komist inn á bloggið en nú er það komið í lag. Ég skrifaði heillanga færslu áðan um það sem ég er búin að gera í sumar og það hvarf allt Fýldur
Ég var í 10 daga kórferðalagi í Þýskalandi, var í 10 daga austur á Eiðum að sjá um námskeið fyrir myndlistarkennara á norðurlöndum, fór í bústað með mömmu í tæpa viku, fór í skírn litlu frænku minnar sem fékk nafnið Sóley Birta, fór í brúðkaup hjá Halldóri og Evu Maríu og flaug svo til Færeyja þar sem ég var í 10 daga. Kom heim síðasta föstudag og er búin að vera þar að mestu síðan. Elsa og Óli Bjössi komu í heimsókn á laugardaginn með Ösku og Grímu með sér og gistu eina nótt. Ég fór í matarboð og svo á tónleika á sunnudag og í heimsókn á Hvalshöfða á mánudag þar sem ég tók á móti Villa litla sem var að koma frá Eyjum og var enn í miklu stuði.
bbíb. Djonní

prufa2Jónína Margrét Arnórsdóttir

hvað er eiginlega með þetta??????????????????'

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...