AtvinnuleysiJónína Margrét Arnórsdóttir

Jæja, var að lesa fundargerð fræðsluráðs Húnaþings vestra frá í gær og þar var samþykkt að leggja starfið mitt niður. Fínt hjá ykkur !!!

Nunnur með skírlífsbeltiJónína Margrét Arnórsdóttir

Þá er hinni bráðskemmtilegu söngvarakeppni lokið á Hvammstanga. Mér fannst alveg æðislegt að fara að kenna 4. bekk í morgun og þau sem komu og sáu okkur í Prjónó á general voru svo stolt af mér, ég hefði sungið svo vel og búningarnir voru svo flottir. Þau fengu samt ekki að sjá allt, maður flassar ekki skírlífsbeltum framan í lítil börn, það var geymt fram á kvöldið. Þvílík öskur í salnum þegar við byrjuðum að losa böndin á nunnu-kuflunum, ég var nærri sprungin úr hlátri en varð að vanda mig að syngja: I can't get no satisfaction!

Núna er ég að verða "húkt" á skemmtilegum æfingum sem heita bootcamp. Ég hélt að ég myndi ekki standa upp úr rúminu mínu í morgun eftir að hafa gert magaæfingar sem gætu léttilega drepið óvana. Ég gerði 50 venjulegar magaæfingarog síðan 10 uppsetur, svo gerði ég 40 magaæfingar, 15 uppsetur, 30 magaæfingar, 20 uppsetur, 20 magaæfingar, 25 uppsetur, 10 magaæfingar og 30 uppsetur. Ég er ekki einu sinni með harðsperrur. Mér líður eins og rosa massa og finnst að það hafi tognað úr mér svei mér þá!!!Glottandi

Er að búa mig andlega undir Þýskalandsferð eftir 28 daga, það verður örugglega rosalega gaman!
Jæja, nú nenni ég ekki meiru í bili.

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...