LetibloggJónína Margrét Arnórsdóttir

Halló

Það er svo langt síðan að ég hef bloggað að það er til skammar. En sumir eru bara uppteknari en aðrir og þegar maður hefur ekki tölvu heima vill þetta fara svona. Ég er stödd í Vejle núna hjá Erlu og strákunum, kom í gærkvöldi og þá voru þeir litlu sofnaðir en Jói Kalli beið eftir mér og ég fékk sko stórt knús frá honum. Í morgun hitti ég svo hina og þeir voru voðalega feimnir við mig fyrst en komu svo til mín og föðmuðu mig voða sætt. Nú er ég að bíða eftir að Erla komi úr vinnunni svo við getum skroppið aðeins bara tvær í búðir. Á morgun stendur svo til að fara í Legoland ef veður leyfir. Þetta er svo dæmigert fyrir mig að eftir góðviðriskafla hér er nú komið rok og rigning og hefur kólnað ískyggilega. Mér finnst þetta reyndar ekki svo slæmt en Erla er ekki sammála því, var skjálfandi af kulda þegar hún sótti mig í lestina í gærkvöld.

En nú nenni ég ekki að  skrifa meira í bili, lofa að blogga aftur fljótlega.

bbíb

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...