Eruð þið búin að heyra þetta?Jónína Margrét Arnórsdóttir
Heyrði þetta lag um daginn, þetta er ótrúlegt, varð að deila því með ykkur !!http://www.rokk.is/default.asp?sida=leit&query=hvar+er+gu%F0mundur
Svo er hér slóð á tónlist sem að fyrrverandi nemendi minn býr til í sínu nafni og annarra ;)
http://www.rokk.is/default.asp?Flytjandi_ID=2642&sida=um_flytjanda
Góða skemmtun
LetilífJónína Margrét Arnórsdóttir
Það er nú ekkert smá letilíf á manni hérna. Ég er búin að hvíla mig vel og að sjálfsögðu borða of mikið. Ég fékk fullt af góðum jólagjöfum, 4 geisladiska, hnífapör, 2 bækur ofl. Svo fékk ég eina gagnlega jólagjöf frá Villa bróður, s.s. stjörnuskrúfjárn sem er stærra en hin 2 sem ég átti fyrir. Hann var nefnilega að setja saman fyrir mig náttborð um daginn og fannst mín ekki passa nægilega vel. Reyndar fór ég með pabba í Húsamiðjuna í Borgarnesi 22. des og þar rakst hann á verkfærasett sem hann splæsti á mig sem svona "eldhúsverkfærum".
Ég reyndi að hlaupa úti á aðfangadag, þvílíkt erfiði, ég var að springa eftir 2,5 km. Það er svo langt síðan að maður hefur getað hlaupið úti, veðrið og færðin hefur ekki alveg boðið upp á það nokkuð lengi. Ég ætla samt að reyna að skokka yfir fjörðinn á eftir, vona að ég verði ekki keyrð niður af brjáluðum Dalamönnum sem koma og kaupa allt sem þeir sjá á rýmingarsölunni í Nesverslun. Það voru aðallega Dalamenn sem voru mættir til að versla og fóru mikinn, háreysti og hlátrasköll svo að maður varð bara hálfþreyttur (maður er ekki vanur svona gassagangi í Króksfjarðarnesi
)Ég fór áðan og keypti mér stígvél á 70% afslætti til að eiga í garðvinnuna næsta sumar. Svo rakst ég á nokkrar hnotur af einspinnu sem ég keypti og ætla að gefa einni konu gegn því að hún geri vettlinga á mig úr hluta af garninu ;)
Á morgun fer ég aftur heim. Ég ætla að taka þétt í hinu árlega Staðarskálamóti í körfubolta. Tók þátt í fyrra og fannst það mjög fyndið, kunni engar reglur og dómararnir voru hættir að dæma á mig skref ofl. hristu bara hausinn og hlógu. Nú kann ég aðeins meira en ætla bara að vera varaskeifa til að hvíla aðeins þær sem eru að springa úr mæði (eru s.s. ekkí í eins góðu formi og ég
) Svo á eftir að sjá hvernig áramótin verða hjá manni þetta árið, best að vera ekki að skipuleggja of langt fram í tímann !!!
Bið að heilsa í bili með hátíðarkveðjum ![]()
Mikill léttirJónína Margrét Arnórsdóttir
Það er töluverður léttir að losna við 10 kíló skal ég segja ykkur og minnka um 2 númer í fatastærð síðan í ágúst ![]()
Ég var í bænum um helgina að versla mér spariföt og vart svo hissa og glöð að þurfa númeri minna en þegar ég var að máta í október.
Annars var líka mjög gaman um helgina að hitta allt þetta sekmmtilega fólk. Gisti hjá Eygló og Dísu og svo fórum við Eygló í heimsókn til Birtu. Ég hitti nokkra góða á búðarölti, t.d. Villa og Júllu. Svo fór ég í hádegisverðarboð hjá Öddu og Árna og þar voru líka Gurrý, Matra og Hlynur og svo auðvitað öll börnin. Ég held ég hafi fengið þá bestu humarsúpu sem ég hef smakkað (namm, namm) Á Skaganum hitti ég svo Grím, Sigrúnu, Arnór Má og Guðmund Þór, Sissó reyndi að vera hress þegar ég rak inn nefið þar og svo fór líka til Rögnu og Guðmundar þar sem ég hitti Dagbjörtu og Daða.
Nú ætla ég að vera dugleg að blogga í jólafríinu ef einhver nennir að fylgjast með !!
bbíb
Hélduð þið að ég væri dauð?????????Jónína Margrét Arnórsdóttir

Mér datt í hug að setja inn mynd af húsinu mínu, ég er loksins búin að skreyta almennilega úti fyrir jólin en Villi bróðir er enn að vinna í því að setja upp fyrir mig seríur í gluggana inni. Annars er bara allt að verða tilbúið, ég bíð bara eftir að klukkan slái 6 á Aðfangadag. NOT
Maður er samt að reyna að koma sér í jólastuð, var að baka með 4. bekk áðan, helmingurinn brann og fór beint í ruslið. Aumingja börnin að hafa svona glataðan heimilisfræðikennara ![]()
Ég fer til Hólmavíkur á morgun til að fara á jólahlaðborð með Elsu og co. Á sunnudagskvöldið er svo aðventukvöld á Melstað ef einhver vill koma og heyra mig syngja unaðsfagurri röddu. Svo er stefnan tekin á að skreppa til höfuðborgarinnar þann 16. des og kaupa jólafötin.
Blessi ykkur í bili