Erla litla þrítugJónína Margrét Arnórsdóttir

Þá er Erla loksins orðin þrítug. Ég man ótrúlega vel eftir þegar hún fæddist enda var ég orðin rígfullorðin, 7 ára. Helgina áður skruppum við, ég,pabbi og Grímur, til Hólmavíkur á Volvo yfir Tunguheiði til að fá súrmat hjá ömmu. Í vikunni fórum við á Miðjanes að kaupa bók til að gefa Halla í afmælisgjöf og tilkynnti ég stolt að ég væri búin að eignast litla systur. Svo fórum við í sextugsafmælið hans Halla og þar voru margir að óska manni til hamingju. Stuttu seinna greip mig heljartökum afbrýðissemi sem ég er alveg nýbúin að losa mig við gagnvart Erlu greyinu.

Við stórfjölskyldan erum nú stödd hjá Erlu og co í Vejle. Mamma bakaði kökur og það var kaffiveisla í dag. Við erum annars búin að vera nokkuð dugleg að versla, ég hugsa að ég fari á hausinn Óákveðinn Þetta er búið að vera mjög fínt hérna og við komumst auðveldlega fyrir í villunni hér á Fousbjergvej 16. Á morgun höldum við svo heim á leið í kuldann.
bbíb

ÚtlendingarnirJónína Margrét Arnórsdóttir

Í tilefni af allri umræðunni um útlendingana verð ég að leggja aðeins orð í belg. Á Hvammstanga er sláturhús og þar er löng sláturtíð. Nokkur undanfarin ár hefur aðallega verið mannað þar með útlendingum. Fyrst voru nokkuð margir Skotar að vinna, þeir voru miklir gleðimenn og settu lit á bæjarlífið. Smám saman hefur Pólverjunum fjölgað og fólk af öðrum þjóðernum nánast horfið. Í haust bjuggu fjölmargir Pólverjar nánast í næsta húsi við mig. Ég get ekki sagt að ég hafi orðið vör við þetta fólk nema að það sást á röltinu. Einn laugardagsmorgun glumdi thecknotónlist frá híbýlum þeirra og svo heyrði ég smá glaum þegar lokakvöldið var í sláturhúsinu með tilheyrandi gleðskap. Afar rólegt og þægilegt fólk!! Eigum við ekki bara að vera þakklát að einhverjir séu tilbúnir að leggja á sig að koma og vinna fyrir okkur þau störf sem eru greinilega ekki nógu fín fyrir okkur sjálf meðan við lifum við þessa velmegun? Við getum væntanlega farið aftur í sláturhúsið ef það kemur kreppa ;)

Reyndar verð ég alltaf fúl þegar maður veit af vel menntuðu fólki sem er að koma til landsins og vinnur svo einhver skítastörf því það fær ekki almennilega kennslu í íslensku og getur því ekki unnið við sitt fag sem oftast krefst þess að fólk sé vel talandi á íslensku. Ekki yrði ég sátt við að fara til annars lands og vinna á lélegum launum við að þvo þvott eða skammta á matarbakka af því að ég fengi ekki almennilegt tækifæri til að læra tungumál landsmanna. Bætum úr þessu!!

Af mér er annars allt gott að frétta, er alltaf að streða við að hlaupa og svo er talsvert að gera hjá mér í vinnu núna. Er búin að vinna meira þessa vikuna í skólanum en í síðasta mánuði held ég og svo er ég í félagsmiðstöðinni núna. Ég er að undirbúa mig fyrir Danmerkurferðina miklu, bíð bara eftir innkaupalistanum hennar Erlu Brosandi  Jæja, best að fara að koma sér heim í rokinu, fara í búðina og kaupa eitthvað óhollt og láta fara vel um sig um helgina (eftir vinnuna í kvöld).
bbíb
PS. Þetta eru nýbúar á Hvammstanga á myndinni hér fyrir neðan!
Nýbúar í Húnaþingi vestra

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...