Stundum er svo lítið að segjaJónína Margrét Arnórsdóttir

Mér finnst einhvernveginn að maður hafi svo lítið að segja. Reyndar náði ég þeim merka áfanga síðasta laugardag að hlaupa 5 kílómetrana. Hélt að ég myndi drepast þegar ég var rúmlega hálfnuð. Sem betur fer var ég með einkaþjálfarann með mér og hún sagði að ég gæti þetta víst þegar ég ætlaði að hætta. Svo hljóp ég þetta á 35 mínútum sem er víst bara býsna góður tími miðað við aldur og fyrri störf (reyndar frekar þyngdina). Ætla að fara og hlaupa á eftir einhvern spöl og svo að reyna aftur að fara 5 á föstudaginn.

Mamma og pabbi komu til mín á föstudagskvöldið og voru fram á laugardagskvöld. Það var gott að fá þau í heimsókn. Pabbi lagaði hurðarhúna, setti upp eitt ljós og hjálpaði mér að setja vetrardekkin upp á  háaloft. Ég fór með mömmu í föndurbúð og pabba að skoða fornbíla og dráttarvélar. Svo fórum við auðvitað aðeins í Kaupfélagið eins og sönnum sveitamönnum sæmir !!

Á sunnudaginn var ég bara í afslöppun, fór í heita pottinn og lagði mig svo á eftir. Fór svo í körfubolta um kvöldið. Það var mjög gaman, sérstaklega að vera í sæmilegu formi og geta hlaupið án þess að vera að kafna. Skömmustulegur

Nú er ég búin að ganga frá einkunnagjöf til nemenda minna svo ég get verið salla róleg þessi annaskiptin. Þetta er óttalegt letilíf hjá manni í vinnunni núna, ég hef varla nokkuð að gera núna miðað við síðustu ár. Spurning hvort maður ætti ekki bara að skreppa til útlanda í langt frí.

Minnir mig á það að ég er að fara eftir rúmar 2 vikur í heimsókn til Erlu og fjölskyldu í Vejle. Hlakka mikið til að hitta þau öll. Kannksi ég ætti að fá mér alvöru ökuskírteini áður en ég fer ef löggan skyldi stoppa mig á rúntinum þar Glottandi

Nú er nóg komið í bili, bæææææææææææææ

KrókloppinJónína Margrét Arnórsdóttir

ER ekki bannað að hafa svona kalt í veðri strax?? Mér finnst þetta alla vega ekki sniðugt. Svo horfir maður öfundaraugum á Evrópukortið í veðurspánni og sér að það er enn 14 stiga hiti í Danmörku. Ég er að drepast úr kulda og trekki Fýldur
Ég var ekkert hissa í morgun en fannst það samt fyndið þegar fyrstu bekkingarnir vældu um að fá að vera inni í frímínútunum því  það væri svo kalt. Er ekki í lagi með foreldra barna í grunnskóla að senda börnin sín ekki almennilega klædd þegar búið er að spá svona kulda??

 

Alltaf að hlaupaJónína Margrét Arnórsdóttir

Létt á sér

Mikið hlakka ég til þegar ég verð orðin svona létt á mér í hlaupunum. Ég er samt alltaf að puða við að skokka, gengur vonum framar. Hljóp í fyrsta sinn í 20 mín í gær og gekk svo vel að ég hefði getið hlaupið töluvert lengur. Svo var ég líka svo glöð þegar ég vigtaði mig í gærmorgun, ég er búin að léttast um rúmlega 5 kíló á 2 mánuðum sem er mjög gott því ég er að hlaða á mig vöðvum núna Skömmustulegur 
Er semsagt líka í leikfimi og tækjum fyrir utan að vera búin að dansa mjög mikið í haust ;)
Sveittar og móðar kveðjur úr Miðfirðinum

Mér var ógnað....Jónína Margrét Arnórsdóttir

Ég sem skólastjórnandi þurfti áðan að tala alverlega við ungan dreng. Mér stóð ógn af honum!!  Ekki afþví að hann hafi verið svo brjálaður. Nei, hann er svo miklu stærri en ég. Ég held ég nái honum í öxl. Hann er líka rosalega sterkur. Hvað ef hann yrði brjálaður og myndi ráðast á mig eins og einn fyrrverandi nemendi minn í Reykhólaskóla. Sá réðist á mig með öskrum og óhljóðum upp úr þurru í miðri kennslustund, kastaði mér upp að vegg og hélt mér þar trítilóður. Eina sem mér datt í hug að gera var að slá hann leiftursnöggt í höfuðið. Hann seig saman eins og sprungin blaðra, settist í sætið sitt og varð ljúfur sem lamb það sem eftir var vetrar. Ég er ekki viss um að þessi brella dygði á þann sem ég ræddi við í dag.

En á eftir, þegar ég verð búin að vinna í félagsmiðstöðinni (kl. 19:00) fer ég í bæinn. Ég er að fara á ráðstefnu. Hljómar mjög virðulega, maður er á ráðstefnum helgi eftir helgi. Nú er ráðstefna á vegum Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands. Eins gott að standa sig og fylgjast vel með því sem er að gerast á mínum vettvangi. Kannski maður geri eitthvað skemmtilegt í leiðinni?

BBÍB

TónlistJónína Margrét Arnórsdóttir

Nú er ég búin að ná mér í forrit á netinu til að geta hlaðið niður tónlist. Ég er t.d. eins og er að hlaða niður Boten Anna sem mér finnst alveg frábært lag. Ef þið hafið áhuga á að ná í tónlsit getið þið prófað þetta: www.limewire.com

Ég er að fara á námstefnu skólastjóra á Selfossi á föstudag og laugardag og gisti þar eina nótt. Fer í bæinn á eftir og ætla í Kringluna og reyna að komast í IKEA í fyrramálið. Fer svo heim á laugardaginn og á þá jafnvel von á fólki í gistingu vegna þess að vinafólk mitt er að láta skíra dóttur sína á sunnudaginn.

Nenni ekki meiru í bili, bææææææææææ

StóðréttirJónína Margrét Arnórsdóttir

Jæja, þá er maður nú búinn að fara í stóðréttir 2 helgar í röð eins og alhörðustu hestamenn gera ;)
Ég var nú bara stillt og pen í Víðidalstunguréttinni, tók aðeins af myndum sem eiga að vera hér til hliðar ef allt hefur gengið að óskum. Það rættist heldur betur úr veðrinu, var búið að spá skítaveðri en svo var bara sólskin þrátt fyrir að það væri svalt. Þess vegna tók ég svona fáar myndir, mér varð svo kalt á höndunum.
Um kvöldið fór ég auðvitað á ball sem var algjör snilld, Geirmundur að spila og stanslaust stuð, mikið dansað og hlegið. Það hefði verið gaman að hafa myndavélina með á ballinu en maður kann samt ekki við það.

Annars hef ég það bara fínt í litla húsinu mínu. Ég er líka hálfnuð með hlaupaprógram sem hljóðar upp á að eftir 3 vikur geti ég hlaupið 5 kílómetra. Þvílík gella (hehe)

Bless í bili úr steypiregninu

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...