MYRKURJónína Margrét Arnórsdóttir
Engin óhöpp í myrkvuninni
Engin óhöpp urðu þrátt fyrir gríðarlega bílaumferð var á höfuðborgarsvæðinu eftir að götulýsing var slökkt í gærkvöldi og mátti minnstu muna að óhöpp yrðu, að sögn lögreglu. Bílum var lagt út um allt og fólk var á gangi án endurskinsmerkja í myrkrinu og umferðinni. Þrátt fyrir að slökkt hafi verið á götuljósum, loguðu ljós í fyrirtækjum og stofnunum út um alla borg og flóðljós voru á Fram vellinum og Stjörnuvellinum í Garðabæ. Unglingar söfnuðust saman á nokkrum stöðum en ekki kom til vandræða, að sögn lögreglu. Þá notuðu margir tækifærið til að skjóta upp flugeldum. Lítið sást hinsvegar til stjarna, sem átti að vera aðal tilgangurinn með myrkvuninni. Í Reuters frétt sem birtist í fjölmörgum erlendum fjölmiðlum í dag, þar á meðal Washington Post, er haft eftir Andra Snæ Magnasyni, sem átti hugmyndina að myrkvuninni, að hann hefði helst viljað hafa heiðskírt en ekki yrði á allt kosið. Reuters hefur eftir Karli Steinari Valssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni að lögreglan hafi getað notað tækifærið sem æfingu fyrir allsherjarafmagnsleysi í borginni.
Á Hvammstanga notuðu margir tækifærið þegar ljósin voru slökkt og fóru út að labba og horfðu upp í stjörnuhimininn. Að vísu voru nokkuð margir sem fóru af stað á bílnum sínum, eins og það sé eitthvað spennandi að rúnta um götur bæjarins í myrkri ; ) (ekki langt að fara til að komast út úr ljósinu svona venjulega) Það voru mjög margir sem slökktu ljósin heima hjá sér svo þetta var skemmtileg tilbreyting.Alltaf nóg að geraJónína Margrét Arnórsdóttir
Maður er búinn að vera sæmilega upptekinn upp á síðkastið. Ég var á haustþingi kennara og skólastjóra á Norðurlandi vestra á föstudaginn, fór svo heim í sveitina á laugardaginn, hitti fullt af skemmtilegu fólki, fór á lélegt réttarball í Bjarkalundi og leit við í Kinnarstaðarétt á sunnudagsmorgninum. Ég er aftur farin að vinna í félagsmiðstöðinni og er þar þessa vikuna. Á laugardaginn fer í stóðréttir í Vesturhópinu og á ball um kvöldið.Mér gengur enn ekki aðkoma mér fyrir í húsinu því að mig vantar enn að það komi einhver með borvél og setji upp hillur og fleira.
Ég ætla að stja hér inn 3 tengla sem þið getið kíkt á ef þið nennið
http://gprime.net/flash.php/imacow
http://eatliver.com/rubber-boots/
Bið að heilsa í bili, Djonní
Gaman að þessuJónína Margrét Arnórsdóttir
Ég er svo mikið kvikindi að ég hef oft gaman af því að sjá fólk lenda í óhöppum, þ.e. ef enginn meiðist. Um daginn sá ég lítinn patta hjóla eins hratt og fætur hans leyfðu eftir Hvammstangabrautinni. Eitthvað brást hjólreiðakappanum bogalistin og stímdi inn í runna. Hann reyndi af öllu kröftum að komast til baka á hjólinu en neyddist að lokum til að stíga af baki til að komast úr runnanum.
Í dag kom ég með gerfirottu með mér í vinnuna og setti í ávaxtaskálina á kaffistofu kennarana. Það var gaman að sjá viðbrögðin hjá fólki sem fékk sér ávexti og sá rottuna. Alltaf vatt þetta upp á sig og eftir því sem fleiri bættust í hópinn magnaðist stemningin þar til ein hálf lamaðist af ótta
. Ég lofa hátíðlega að gera ekki fleiri svon hrekki í bráð !!
Bestu kveðjur úr blíðunni í Miðfirðinum
Á slóðum GrettisJónína Margrét Arnórsdóttir
Ég fór í skemmtilega ferð með nemenda mínum í morgun. Veðrið var skikkanlegt svo ég ákvað að fara með honum fram að Bjargi í Miðfirði, þar sem við erum að vinna með Grettissögu, og skoða minnisvarðann þar og eins steininn þar sem höfuð Grettis á að vera grafið. Við vorum svo heppin að það var búið að bera ríflega af skít á túnið og við vorum með laglega klessur á skónum okkar. Svo ákváðum við að keyra hringinn og taka myndir. Þá kláraðist rafhlaðan í myndavélinni !!
En annars er þetta bara búnn að vera góður dagur.
Ég var á afar skemmtilegu námskeiði hjá FÍMK á föstudag og laugardag um samtímalist sem gefur manni ótrúlegan innblástur. Ég hlakka mikið til að nota eitthvað af hugmyndunum í kennslunni minni.
Þar kom að því að maður byrjaði á þessari vitleysu ; )Jónína Margrét Arnórsdóttir
Jæja, lét undan þrýstingi um að byrja að blogga (aðallega frá sjálfri mér hehe). Maður getur ekki verið þekktur fyrir að gefa vinum og vandamönnum ekki opinbera hlutdeild í lífi sínu. Ég hef samt ekki tíma til að blogg neitt af viti í dag en geri það eftir helgina.
Er að fara á námskeið í bænum og hef alveg nóg að gera í bili.![]()
Bestu kveðjur, Djonní