Ef við mælum í......Jónína Margrét Arnórsdóttir

EF ég mæli í smjörlíkisstykkjum hvað ég er búin að léttast mikið þá eru það 27 stykki. Geri aðrir betur. Ég ætla í búðina á eftir og setja svona mörg stykki í körfuna, bara til að sjá hvað þetta er mikið Hlæjandi
JIBBÍ

Annasamur en skemmtilegur tímiJónína Margrét Arnórsdóttir

Það er ekki hægt að segja annað en það sé nóg hjá mér að gera þessa dagana. Ég hef engan tíma til að blogga og svoleiðis dúllerí. Ég er að snuddast eitthvað með í uppsetningu á Emil í Kattholti, er í ræktinni, á kóræfingum, fer á þorrablót, reyni að hitta vini og kunningja, vinn í félagsmiðstöðinni fyrir utan vinnuna í skólanum. Svo þarf ég að sjálfsögðu að hugsa um heimilið sem er helmingi erfiðara núna þar sem Villi bróðir býr hjá mér (miklu meiri þrif). Svo erum við í Prjónó auðvitað að reyna að finna út hvaða lag við eigum að taka á söngvarakeppninni :)
Datt bara í hug að láta vita afhverju ég blogga svona lítið núna.
bbíb

Ofvirk á blogginu (miðað við venjulega)Jónína Margrét Arnórsdóttir

Var aðeins að vafra á netinu og fann þetta skemmtilega myndband sem er gert af konu sem heitir Rebekka.
http://www.youtube.com/watch?v=BWxjLIZyBgg


Rebekka er líka með rosalega flotta ljósmyndasíðu sem ég skoða af og til
http://www.flickr.com/photos/rebba/


Fannst að ég yrði að leifa fleirum að njóta þessa
bbíb

Aðeins að stelast í vinnunni...........Jónína Margrét Arnórsdóttir

Er ekki tilvalið að hafa þetta bleikt ár? Ég hef einsett mér að verða há, grönn og spengileg ljóska sem er afar blíð og kvenleg. Hvað passar betur við en að nota bleikt letur?
Þá er enn eitt árið hlaupið frá manni. Nýja árið hefur byrjað nokkuð vel fyrir utan mikið kvef og nokkurn lasleika sem hefur orsakað að ég hef ekkert getað hreyft mig að undanförnu. Ég vonast til að geta farið að bæta úr því seinnipart vikunnar. Ég steig á vigtina í morgun og sá að ég er búin að bæta á mig aftur öðru kílóinu sem ég missti í jólafríinu. Ég hefði ekki átt að vorkenna mér svona mikið og borða allt þetta nammi.

Ég er í Leikflokknum á Hvammstanga og við erum byrjuð að æfa leikritið um hann Emil í Kattholti. Ég held að þetta verði alveg frábær sýning, það er svo skemmtilegt fólk sem tekur þátt að það getur ekki annað verið. Glottandi

Ég hlakka svo til á föstudaginn því þá er bóndadagurinn, s.s. fyrsti dagur í Þorra. Þá er alltaf þorramatur í skólanum sem er alveg dásamlega góður. Svo förum við Prjónókonur í bústað, réttara sagt veiðihús, um helgina. Mér finnst þetta frábær hefð að konurnar leyfi bændum sínum að njóta þess að vera húsbændur á sínu heimili og fái að sjá um það og börnin án afskipta þeirra. Þeir halda að vísu nokkrir saman matarveislu að kveldi bóndadags því þeir treysta sér ekki alveg til að vera einir á þessum degi með börnin.

Um daginn fór ég í skemmtilegt afmæli hjá einni af Gluntrasystrunum og eiginmanni hennar. Það var mjög gaman að hitta systurnar og maka þeirra sem og ýmsa aðra gesti sem voru í veislunni hjá Svíunum Bryndísi og Sigurjóni. Mér finnst að nú sé kominn tími á að Gluntrasystur komi í heimsókn til mín á Tangann, maður er oft að bruna til að hitta þær á Skaganum eða í Reykjavík, jafnvel farið alla leið til Svíþjóðar til að hittast.

Ég ætla að lokum að setja inn mynd sem ég fann á netinu sem mér finnst skemmtileg og gef ykkur vefslóðina svo þið getið skoða fleiri eftir þennan listamann.
 málverk
Ég er ekki viss um að myndin komi, tölvan er með stæla en hér er slóðin á hana http://www.nickfed.com/beachbook.htm

Bestu kveðjur úr brunagaddinum í Húnþingi vestra

Eruð þið búin að heyra þetta?Jónína Margrét Arnórsdóttir

Heyrði þetta lag um daginn, þetta er ótrúlegt, varð að deila því með ykkur !!
http://www.rokk.is/default.asp?sida=leit&query=hvar+er+gu%F0mundur


Svo er hér slóð á tónlist sem að fyrrverandi nemendi minn býr til í sínu nafni og annarra ;)
http://www.rokk.is/default.asp?Flytjandi_ID=2642&sida=um_flytjanda


Góða skemmtun

LetilífJónína Margrét Arnórsdóttir

Það er nú ekkert smá letilíf á manni hérna. Ég er búin að hvíla mig vel og að sjálfsögðu borða of mikið. Ég fékk fullt af góðum jólagjöfum, 4 geisladiska, hnífapör, 2 bækur ofl. Svo fékk ég eina gagnlega jólagjöf frá Villa bróður, s.s. stjörnuskrúfjárn sem er stærra en hin 2 sem ég átti fyrir. Hann var nefnilega að setja saman fyrir mig náttborð um daginn og fannst mín ekki passa nægilega vel. Reyndar fór ég með pabba í Húsamiðjuna í Borgarnesi 22. des og þar rakst hann á verkfærasett sem hann splæsti á mig sem svona "eldhúsverkfærum".

Ég reyndi að hlaupa úti á aðfangadag, þvílíkt erfiði, ég var að springa eftir 2,5 km. Það er svo langt síðan að maður hefur getað hlaupið úti, veðrið og færðin hefur ekki alveg boðið upp á það nokkuð lengi. Ég ætla samt að reyna að skokka yfir fjörðinn á eftir, vona að ég verði ekki keyrð niður af brjáluðum Dalamönnum sem koma og kaupa allt sem þeir sjá á rýmingarsölunni í Nesverslun. Það voru aðallega Dalamenn sem voru mættir til að versla og fóru mikinn, háreysti og hlátrasköll svo að maður varð bara hálfþreyttur (maður er ekki vanur svona gassagangi í Króksfjarðarnesi Hlæjandi)Ég fór áðan og keypti mér stígvél á 70% afslætti til að eiga í garðvinnuna næsta sumar. Svo rakst ég á nokkrar hnotur af einspinnu sem ég keypti og ætla að gefa einni konu gegn því að hún geri vettlinga á mig úr hluta af garninu ;)

Á morgun fer ég aftur heim. Ég ætla að taka þétt í hinu árlega Staðarskálamóti í körfubolta. Tók þátt í fyrra og fannst það mjög fyndið, kunni engar reglur og dómararnir voru hættir að dæma á mig skref ofl. hristu bara hausinn og hlógu. Nú kann ég aðeins meira en ætla bara að vera varaskeifa til að hvíla aðeins þær sem eru að springa úr mæði (eru s.s. ekkí í eins góðu formi og ég Hlæjandi) Svo á eftir að sjá hvernig áramótin verða hjá manni þetta árið, best að vera ekki að skipuleggja of langt fram í tímann !!!
Bið að heilsa í bili með hátíðarkveðjum Koss

Mikill léttirJónína Margrét Arnórsdóttir

Það er töluverður léttir að losna við 10 kíló skal ég segja ykkur og minnka um 2 númer í fatastærð síðan í ágúst Hlæjandi
Ég var í bænum um helgina að versla mér spariföt og vart svo hissa og glöð að þurfa númeri minna en þegar ég var að máta í október.
Annars var líka mjög gaman um helgina að hitta allt þetta sekmmtilega fólk. Gisti hjá Eygló og Dísu og svo fórum við Eygló í heimsókn til Birtu. Ég hitti nokkra góða á búðarölti, t.d. Villa og Júllu. Svo fór ég í hádegisverðarboð hjá Öddu og Árna og þar voru líka Gurrý, Matra og Hlynur og svo auðvitað öll börnin. Ég held ég hafi fengið þá bestu humarsúpu sem ég hef smakkað (namm, namm) Á Skaganum hitti ég svo Grím, Sigrúnu, Arnór Má og Guðmund Þór, Sissó reyndi að vera hress þegar ég rak inn nefið þar og svo fór líka til Rögnu og Guðmundar þar sem ég hitti Dagbjörtu og Daða.
Nú ætla ég að vera dugleg að blogga í jólafríinu ef einhver nennir að fylgjast með !!
bbíb

Hélduð þið að ég væri dauð?????????Jónína Margrét Arnórsdóttir

Jóaljósin hjá mér

Mér datt í hug að setja inn mynd af húsinu mínu, ég er loksins búin að skreyta almennilega úti fyrir jólin en Villi bróðir er enn að vinna í því að setja upp fyrir mig seríur í gluggana inni. Annars er bara allt að verða tilbúið, ég bíð bara eftir að klukkan slái 6 á Aðfangadag.     NOT
Maður er samt að reyna að koma sér í jólastuð, var að baka með 4. bekk áðan, helmingurinn brann og fór beint í ruslið. Aumingja börnin að hafa svona glataðan heimilisfræðikennara Óákveðinn
Ég fer til Hólmavíkur á morgun til að fara á jólahlaðborð með Elsu og co. Á sunnudagskvöldið er svo aðventukvöld á Melstað ef einhver vill koma og heyra mig syngja unaðsfagurri röddu. Svo er stefnan tekin á að skreppa til höfuðborgarinnar þann 16. des og kaupa jólafötin.
Blessi ykkur í bili

Erla litla þrítugJónína Margrét Arnórsdóttir

Þá er Erla loksins orðin þrítug. Ég man ótrúlega vel eftir þegar hún fæddist enda var ég orðin rígfullorðin, 7 ára. Helgina áður skruppum við, ég,pabbi og Grímur, til Hólmavíkur á Volvo yfir Tunguheiði til að fá súrmat hjá ömmu. Í vikunni fórum við á Miðjanes að kaupa bók til að gefa Halla í afmælisgjöf og tilkynnti ég stolt að ég væri búin að eignast litla systur. Svo fórum við í sextugsafmælið hans Halla og þar voru margir að óska manni til hamingju. Stuttu seinna greip mig heljartökum afbrýðissemi sem ég er alveg nýbúin að losa mig við gagnvart Erlu greyinu.

Við stórfjölskyldan erum nú stödd hjá Erlu og co í Vejle. Mamma bakaði kökur og það var kaffiveisla í dag. Við erum annars búin að vera nokkuð dugleg að versla, ég hugsa að ég fari á hausinn Óákveðinn Þetta er búið að vera mjög fínt hérna og við komumst auðveldlega fyrir í villunni hér á Fousbjergvej 16. Á morgun höldum við svo heim á leið í kuldann.
bbíb

ÚtlendingarnirJónína Margrét Arnórsdóttir

Í tilefni af allri umræðunni um útlendingana verð ég að leggja aðeins orð í belg. Á Hvammstanga er sláturhús og þar er löng sláturtíð. Nokkur undanfarin ár hefur aðallega verið mannað þar með útlendingum. Fyrst voru nokkuð margir Skotar að vinna, þeir voru miklir gleðimenn og settu lit á bæjarlífið. Smám saman hefur Pólverjunum fjölgað og fólk af öðrum þjóðernum nánast horfið. Í haust bjuggu fjölmargir Pólverjar nánast í næsta húsi við mig. Ég get ekki sagt að ég hafi orðið vör við þetta fólk nema að það sást á röltinu. Einn laugardagsmorgun glumdi thecknotónlist frá híbýlum þeirra og svo heyrði ég smá glaum þegar lokakvöldið var í sláturhúsinu með tilheyrandi gleðskap. Afar rólegt og þægilegt fólk!! Eigum við ekki bara að vera þakklát að einhverjir séu tilbúnir að leggja á sig að koma og vinna fyrir okkur þau störf sem eru greinilega ekki nógu fín fyrir okkur sjálf meðan við lifum við þessa velmegun? Við getum væntanlega farið aftur í sláturhúsið ef það kemur kreppa ;)

Reyndar verð ég alltaf fúl þegar maður veit af vel menntuðu fólki sem er að koma til landsins og vinnur svo einhver skítastörf því það fær ekki almennilega kennslu í íslensku og getur því ekki unnið við sitt fag sem oftast krefst þess að fólk sé vel talandi á íslensku. Ekki yrði ég sátt við að fara til annars lands og vinna á lélegum launum við að þvo þvott eða skammta á matarbakka af því að ég fengi ekki almennilegt tækifæri til að læra tungumál landsmanna. Bætum úr þessu!!

Af mér er annars allt gott að frétta, er alltaf að streða við að hlaupa og svo er talsvert að gera hjá mér í vinnu núna. Er búin að vinna meira þessa vikuna í skólanum en í síðasta mánuði held ég og svo er ég í félagsmiðstöðinni núna. Ég er að undirbúa mig fyrir Danmerkurferðina miklu, bíð bara eftir innkaupalistanum hennar Erlu Brosandi  Jæja, best að fara að koma sér heim í rokinu, fara í búðina og kaupa eitthvað óhollt og láta fara vel um sig um helgina (eftir vinnuna í kvöld).
bbíb
PS. Þetta eru nýbúar á Hvammstanga á myndinni hér fyrir neðan!
Nýbúar í Húnaþingi vestra

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...