StóđréttirJónína Margrét Arnórsdóttir
Jæja, þá er maður nú búinn að fara í stóðréttir 2 helgar í röð eins og alhörðustu hestamenn gera ;)
Ég var nú bara stillt og pen í Víðidalstunguréttinni, tók aðeins af myndum sem eiga að vera hér til hliðar ef allt hefur gengið að óskum. Það rættist heldur betur úr veðrinu, var búið að spá skítaveðri en svo var bara sólskin þrátt fyrir að það væri svalt. Þess vegna tók ég svona fáar myndir, mér varð svo kalt á höndunum.
Um kvöldið fór ég auðvitað á ball sem var algjör snilld, Geirmundur að spila og stanslaust stuð, mikið dansað og hlegið. Það hefði verið gaman að hafa myndavélina með á ballinu en maður kann samt ekki við það.
Annars hef ég það bara fínt í litla húsinu mínu. Ég er líka hálfnuð með hlaupaprógram sem hljóðar upp á að eftir 3 vikur geti ég hlaupið 5 kílómetra. Þvílík gella (hehe)
Bless í bili úr steypiregninu
Athugasemdir
En ég bíð nú alltaf spennt eftir að sjá myndirnar af húsinu sem að þú sagðist ætla að setja inn .......
Hafðu það gott mín kæra og við erum orðinn MJÖG SPENNT að fá ykkur í heimsókn
Ég heimta líka myndir af húsinu þínu hehehehe
Ef maður er komin með einhvern hestaáhuga, er spurning um það hvort maður
á ekki að fara að skipta um umhverfi. Hestaáhuginn væri reyndar það sem er kallað
að aðlagast. Ég var búin að gá að því hvort þú værir eitthvað að skirfa á bloggið núna
síðustu daga,en það er ekki skrítið að þú hafir ekki haft tíma til að skrifa inn á blogg, þegar
þú hefur verið svona upptekin af stóðréttum og böllum. Gaman að geta fylgst með
því hvað fólk er að gera. Heyri vonandi í þér fljótlega. Er með sama símanúmer og áður.
Kveðja Hlíf á Kirkjubæjarklaustri