MYRKURJónína Margrét Arnórsdóttir

 
Engin óhöpp í myrkvuninni

Engin óhöpp urðu þrátt fyrir gríðarlega bílaumferð var á höfuðborgarsvæðinu eftir að götulýsing var slökkt í gærkvöldi og mátti minnstu muna að óhöpp yrðu, að sögn lögreglu. Bílum var lagt út um allt og fólk var á gangi án endurskinsmerkja í myrkrinu og umferðinni. Þrátt fyrir að slökkt hafi verið á götuljósum, loguðu ljós í fyrirtækjum og stofnunum út um alla borg og flóðljós voru á Fram vellinum og Stjörnuvellinum í Garðabæ. Unglingar söfnuðust saman á nokkrum stöðum en ekki kom til vandræða, að sögn lögreglu. Þá notuðu margir tækifærið til að skjóta upp flugeldum. Lítið sást hinsvegar til stjarna, sem átti að vera aðal tilgangurinn með myrkvuninni. Í Reuters frétt sem birtist í fjölmörgum erlendum fjölmiðlum í dag, þar á meðal Washington Post, er haft eftir Andra Snæ Magnasyni, sem átti hugmyndina að myrkvuninni, að hann hefði helst viljað hafa heiðskírt en ekki yrði á allt kosið. Reuters hefur eftir Karli Steinari Valssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni að lögreglan hafi getað notað tækifærið sem æfingu fyrir allsherjarafmagnsleysi í borginni.

 Á Hvammstanga notuðu margir tækifærið þegar ljósin voru slökkt og fóru út að labba og horfðu upp í stjörnuhimininn. Að vísu voru nokkuð margir sem fóru af stað á bílnum sínum, eins og það sé eitthvað spennandi að rúnta um götur bæjarins í myrkri ; ) (ekki langt að fara til að komast út úr ljósinu svona venjulega) Það voru mjög margir sem slökktu ljósin heima hjá sér svo þetta var skemmtileg tilbreyting.

Athugasemdir

1
Birta Dögg skrifar:
Þetta var líka flott að sjá alskýjað á stór Rykjavíkursvæðinu hehehehe sunnan menn hafa heldur aldrei séð ský í myrkri hohohoho
30. september 2006 klukkan 04:22
2
mamman skrifar:
Hvasmmstangabúar þurfa svo sem ekki að slökkva ljósin þar sem stutt er í myrkrið, en auðvitað er snilld að vera með.
Ljósin voru slökkt hér og við sáum stjörnurnar á himinhvolfinu, ekkert nýtt fyrir mig, en mér fannst skondið að sjá "myrvunina" í Reykjavík
30. september 2006 klukkan 18:41
3
mamman skrifar:
hva er bara ennþá myrkur fyrir norðan ;)
09. október 2006 klukkan 05:29

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...