Alltaf nóg ađ geraJónína Margrét Arnórsdóttir
Maður er búinn að vera sæmilega upptekinn upp á síðkastið. Ég var á haustþingi kennara og skólastjóra á Norðurlandi vestra á föstudaginn, fór svo heim í sveitina á laugardaginn, hitti fullt af skemmtilegu fólki, fór á lélegt réttarball í Bjarkalundi og leit við í Kinnarstaðarétt á sunnudagsmorgninum. Ég er aftur farin að vinna í félagsmiðstöðinni og er þar þessa vikuna. Á laugardaginn fer í stóðréttir í Vesturhópinu og á ball um kvöldið.Mér gengur enn ekki aðkoma mér fyrir í húsinu því að mig vantar enn að það komi einhver með borvél og setji upp hillur og fleira.
Ég ætla að stja hér inn 3 tengla sem þið getið kíkt á ef þið nennið
http://gprime.net/flash.php/imacow
http://eatliver.com/rubber-boots/
Bið að heilsa í bili, Djonní
Athugasemdir
2
Gurrý skrifar:
Hélt ég myndi brjálast yfir kappanum í rauðu stígvélunum. Sá heldur að hann sé kynþokkafullur..... Annars var ég að spá í hvort þú værir hætt að blogga en kom svo í ljós að það er náttúrulega bilað að gera hjá þér.
29. september 2006 klukkan 17:50
Kveðja frá litlu fjölskyldunni í Danmörku