Gaman ađ ţessuJónína Margrét Arnórsdóttir
Ég er svo mikið kvikindi að ég hef oft gaman af því að sjá fólk lenda í óhöppum, þ.e. ef enginn meiðist. Um daginn sá ég lítinn patta hjóla eins hratt og fætur hans leyfðu eftir Hvammstangabrautinni. Eitthvað brást hjólreiðakappanum bogalistin og stímdi inn í runna. Hann reyndi af öllu kröftum að komast til baka á hjólinu en neyddist að lokum til að stíga af baki til að komast úr runnanum.
Í dag kom ég með gerfirottu með mér í vinnuna og setti í ávaxtaskálina á kaffistofu kennarana. Það var gaman að sjá viðbrögðin hjá fólki sem fékk sér ávexti og sá rottuna. Alltaf vatt þetta upp á sig og eftir því sem fleiri bættust í hópinn magnaðist stemningin þar til ein hálf lamaðist af ótta
. Ég lofa hátíðlega að gera ekki fleiri svon hrekki í bráð !!
Bestu kveðjur úr blíðunni í Miðfirðinum
Athugasemdir
Þetta er svona eitt af mínum gullkornum. Var að spá í 1/4 af pizzu en fannst það samt óskiljanlegra.
Það væri gaman að frétta af þegar bumbubúinn ákveður að gera eitthvað í sínum málum og skríða út.
Annars skellti ég nú uppúr þegar ég sá tilvitnunina með bartann, Þessu var ég alveg búin að gleyma......
Góður.