Á slóðum GrettisJónína Margrét Arnórsdóttir

Ég fór í skemmtilega ferð með nemenda mínum í morgun. Veðrið var skikkanlegt svo ég ákvað að fara með honum fram að Bjargi í Miðfirði, þar sem við erum að vinna með Grettissögu, og skoða minnisvarðann þar og eins steininn þar sem höfuð Grettis á að vera grafið. Við vorum svo heppin að það var búið að bera ríflega af skít á túnið og við vorum með laglega klessur á skónum okkar. Svo ákváðum við að keyra hringinn og taka myndir. Þá kláraðist rafhlaðan í myndavélinni !!
Hluti af minnismerkinu á Bjargi


En annars er þetta bara búnn að vera góður dagur.
Ég var á afar skemmtilegu námskeiði hjá FÍMK á föstudag og laugardag um samtímalist sem gefur manni ótrúlegan innblástur. Ég hlakka mikið til að nota eitthvað af hugmyndunum í kennslunni minni.

Athugasemdir

1
adda padda skrifar:
hellú og til lukku með síðuna, snilldar setning sem fylgir titlinum, hehe ;D

þú verður nú ekki lengi að hlaupa af þér þennan skít undir skónum ef ég þekki þig rétt ;)
11. september 2006 klukkan 23:14
2
Birta Dögg skrifar:
Það er bara merki um að þú sért komin í sveit að vera með kindaskít undir skónum......
12. september 2006 klukkan 03:51
3
mamman skrifar:
það er nú til skammar að viðurkenna það að ég hef aldrei skoðað þennan minnisvarða !

Þú ert komin í favorites hjá mér stelpa svo ég lít inn öðru hvoru.
12. september 2006 klukkan 16:42
4
Gurrý skrifar:
Til lukku með blogg síðuna þína. Verð fastagestur, því lofa ég.
kv. Gurrý með stóru bumbuna.
12. september 2006 klukkan 18:18
5
Jóna Magga skrifar:
Takk fyrir þessar góðu viðtökur ; )
Já, Dagbjört, þú mátt setja mig inn á listann hjá þér.
12. september 2006 klukkan 19:00
6
Birta Dögg skrifar:
ummmm ég er að borða svo góða köku núna ummmmm
12. september 2006 klukkan 21:58
7
mamman skrifar:
kakan hennar birtu er vísast búin í dag svo ekkert þýðir að renna þangað í köku ogg kaffi ;)
13. september 2006 klukkan 17:32

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...