Vikan leiđ hratt.............Jónína Margrét Arnórsdóttir

Jæja ágætu og dyggu lesendur

Þá er rétt að segja aðeins frá hvað á dagana hefur drifið. Ég vann auðvitað eins og vitleysingur í sumar og notaði svo nánst öll frí til að ferðast, þá aðallega við Húnaflóann.
 
Ég fór á Hamingjudaga á Hólmavík sem vor mis hamingjuríkir sökum veðurs en hitti þar fullt af fólki sem ég hef ekki hitt mjög lengi og það er alltaf skemmtilegt.

Ég fór líka á Bryggjuhátíð á Drangsnesi sem var vel heppnuð, sér í lagi vegna mikillar veðurblíðu og svo hitti maður svo margt skemmtilegt fólk.

Á Hvammstanga var svo Unglist og það litla sem ég gat fylgst með henni var frábært, gott veður og mikið af skemmtilegu fólki.

Strax eftir Verslunarmannahelgi fór íg í 8 daga sumarfrí sem ég eyddi í Reykjafirði á norður-Ströndum. Þetta var alveg dásamlegt líf, farið í nokkrar gönguferðir og á hverjum degi í heita sundlaugina. Ekki spillti fyrir hversu skemmtilegt fólk var með í ferðinni.

Í ágúst skipti ég svo um vinnu og hóf störf á Skólabúðunum á Reykjum við kennslu.

Ég lét mig svo ekki vanta á Reykhóladaginn sem var haldinn í leiðindaveðri en var vel heppnaður að öðru leiti.

Ég dreif mig svo heim í smalamennsku 20. september og gladdi bræður mína með stjórnsemi minni og skipulagshæfileikum ;)

Annars er allt við það sama hjá mér og ég hef það bara fínt.

bbíb

Athugasemdir

1
I liek your story! I'd liek to spend my day such a way too!
08. janúar 2012 klukkan 16:23

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...