Söngvarakeppnin búin !!!Jónína Margrét Arnórsdóttir

Jæja, þá er söngvarakeppnin búin. Mér fannst þetta mjög skemmtileg keppni og lang flestir stóðu sig vel þó að auðvitað klikki alltaf eitthvað. Ég til dæmis ákvað að syngja aðeins á vitlausum stað ofan í hana Tótu. Tóta kom sem sagt inn í atriðið fyrir Unni (raddlausu) systur sína á föstudaginn þannig að æfingatíminn okkar var mjög stuttur en hún stóð sig eins og hetja. Við ákváðum líka að breyta búningunum okkar á laugardeginum því við ætluðum að vera í öllu svörtu en svo var bakgrunnurinn allt í einu orðinn svartur og þá hefðum við horfið. (Ekki sennilegt með mig reyndar, djöfull er maður alltaf feitur á myndum Glottandi). Úrslitin komu mörgum á óvart en ég held samt að það hafi verið mjög sniðugt að fá einhverja ókunnuga í dómnefndina sem komu þarna inn alveg hlutlausir (þó sumir vilji meina að Gummi á Ósi hafi verið búinn að segja þeim til Glottandi).
alla vega held ég að þeir sem fengu verðlaun hafi verið mjög ánægðir. Guðrún Ósk enn í öðru sætinu, eru þetta álög????

Besti búningur: Brynjar (hann var í ljótari fötum en ég)
Besta sviðsframkoma: Guðrún Ósk og Sveinbjörg (og allir strákarnir) Mjög skemmtilegt atriði
3. sætið: Hulda Signý - Strax í dag
2. sætið: Guðrún Ósk og Sveinbjörg - Fljúgðu hærra
1. sætið: Elín, Daði og Solla - Förum saman í ærlegt sumarfrí

Mér fannst reyndar verst að Elín Ósk skyldi ekki fá verðlaun, hún var rosalega góð með uxahryggjarhalanegrablómkálssveppasúpuna en svona er lífið, það eru ekki allir sigurvegarar. Það er samt svo gaman að taka þátt þó stemningin hafi verið í minna lagi þetta árið að einhverjum ástæðum.

Annars er ég búin að vera að vinna mikið og mikil vinna framundan, sem er mjög gott, þá hlýtur maður að vaða í seðlum (NOT)

Nenni ekki að skrifa meira í bili, bææææ.........

Athugasemdir

1
Erla skrifar:
Hahaha...svartur bakgrunnur og svartir búningar, ég sé fyrir mér bara andlit á heyfingu í myrkrinu hehe...
16. apríl 2008 klukkan 19:02
2
Sæa skrifar:
Sæl og blessuð og takk fyrir síðast, ég ætla aðeins að koma með smá innlegg að Gummi var ekki í dómnefndinni en restin af Sólon var. Já ég er ósammála dómnum, ég vildi sjá Elínu í sæti. En svona er þetta, maður fær ekki að ráða öllu :-(
17. apríl 2008 klukkan 10:35
3
Guðbjörg skrifar:
Ég hefði líka viljað sjá Júlla í sæti !! það er kominn tími á að hann verði með þeim efstu.
20. apríl 2008 klukkan 20:09
4
Elín Sigurvegari :) skrifar:
Sæl mín kæra :)
Ekki varð ég vör við að við værum umdeild en maður heyrir það nú reyndar sjaldnast beint. ;) Við hins vegar erum óskaplega sátt við úrslitin og fengum alveg heeeeellings fullt af jákvæðum kommentum og peppi. Það sem skiptir mestu er að hafa gaman af og taka þátt er það ekki ?? Það er allavega mín reynsla og ég er sammála þér varðandi dómnefndina, það er hætt við að innansveitar dómnefnd sé lituð af tja hvað á maður að segja samneyti eða kunningskap við keppendur (Asnalega orðað en vonandi skilar meiningin sér).
Bestu kveðjur Elín
28. apríl 2008 klukkan 15:31
5
Jóna Magga skrifar:
Það er alltaf svo margt í gangi hjá fólki á svona keppni. Mér fannst sumt af þessu svo fyndið að ég gat ekki sleppt að minnast á það á síðunni :)
Ef mér finndist ekki svona gaman að taka þátt hefði ég bara hætt því ég veit alveg að ég kem aldrei til með að vinna.
Takk fyrir kommentin :)
30. apríl 2008 klukkan 12:50

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...