Jónína Margrét Arnórsdóttir

Gaman að sjá að það er að kíkja fólk inn á síðuna hjá manni þrátt fyrir að maður sé ekki að standa sig vel í þessu bloggi. Sumir upplifa þetta sem njósnir en maður á auðvitað ekki að setja á netið það sem maður vill hafa fyrir sig.

Ég er að fara til Reykjavíkur á eftir og ætla í bíó í kvöld að sjá myndina Heiðin sem var tekin upp í sveitinni heima. Vona að hún sé ekki of niðurdrepandi, alla vegana er sveitin á mikilli niðurleið Óákveðinn

Á morgun flýg ég svo til Danmerkur og fer í heimsókn til Erlu og co. Hún sendi mér sms áðan og var að fara að versla í matinn og vildi fá að vita hvort það væri e-ð sérstakt sem mig langaði í. Ég sagði auðvitað Tuborg og leverpostej Glottandi

Veðurspáin í Vinding er ekkert spes fyrir þessa daga sem ég verð en þó betri en hér heima (ekki bylur).

Kannski að maður fari á flakk og skoði e-ð í kringum Vejle ef hægt er.

bbíb
Djonni

ps. Ég missi því miður af því þegar Johnny and the rest spila á Síróp, þeir eru magnaðir

Athugasemdir

1
gunna skrifar:
Vona að þú hafir notið daganna í danaveldi með systir þinni og fjölsk. Síðbúin páskakveðja
24. mars 2008 klukkan 17:51
2
Anita skrifar:
Hæ. Ég ætlar að senda þér svolítið værir þú til í að senda mér netfangið þitt... Takk takk
27. mars 2008 klukkan 21:37
3
Hæ elsku frænka!
Þú mátt að sjálfsögðu taka afrit af þeim myndum sem þig langar :)
Hlökkum til að sjá þig næst, við stefnum á að komast bráðum norður á Skaga í smá ferðalag og þá kíkjum við nú við ef við megum :D
05. apríl 2008 klukkan 19:34

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...