Hrakfarasaga 2. kafliJónína Margrét Arnórsdóttir
Það hefur ekki gengið vel hjá mér í farsímamálum. Ég var lengi vel treg til að fá mér síma. Fékk mér loks Nokia símahlunk sem entist í mörg ár þrátt fyrir hin ýmsu áföll, ég var búin að skipta um bak á honum og það var komin sprunga á skjáinn en alltaf virkaði gersemin þó. Þar sem mér áskotnuðust nokkrir peningar síðasta haust ákvað ég nú að gerast flott á því og fékk mér dýra og flotta týpu af Nokia síma með hinum ýmsu fídusum. Ég var ægilega ánægð með þennan síma, var samt ekki alveg búin að læra fyllilega á hann þegar hann gaf upp öndina óvænt í febrúar eða mars. Ég reyndi af öllum mætti að fá þennan síma bættan því það hafði ekkert komið fyrir hann en það reyndist hafa komist í hann raki skv. úrskurði ábyrgðaraðila. Það tjón er ekki bætt.En einar gleðifréttir, ég er ekki með sykursýki eins og óttast var um tíma svo nú get ég borðað allt sem ég vil um jólin. Ég er reyndar ekki búin að standa mig í að léttast en það er vegna þess að ég var að hugsa um að njóta lystisemda lífsins meðan ég gæti, ef ég skyldi svo vera með sykursýki.
Bið að heilsa í bili, best að fara að vinna, Djonní
Athugasemdir
2
Jóna Magga skrifar:
Ég er líka farin að hlakka til að sjá ykkur. Og ég er komin með svo geðveika uppskrift að bestu rauðvínssósu í heimi til að hafa með svínakjötinu á aðfangadag.
13. desember 2007 klukkan 12:51
3
Villi skrifar:
Hvernig væri að hafa bjórsósu til tilbreytingar?
"Hver er sósa?" sagði maðurinn um árið
"Hver er sósa?" sagði maðurinn um árið
14. desember 2007 klukkan 22:56
4
gunna skrifar:
hva? því ekki bara bjórinn, ja svo ég tali nú ekki um rauðvínið hehehehe
Oh! símavesen, ég er alltaf einhverjar vikur að sættast við nýjan síma, jafnvel þó ég velji hann af kostgæfni, svo ekki vildi ég vera í þínum sporum.
Annars bara kær kveðja til þín stelpa :)
Oh! símavesen, ég er alltaf einhverjar vikur að sættast við nýjan síma, jafnvel þó ég velji hann af kostgæfni, svo ekki vildi ég vera í þínum sporum.
Annars bara kær kveðja til þín stelpa :)
15. desember 2007 klukkan 14:19
Já og það er gott að þú getir borðað allt sem að þig langar til um jólin, væri örugglega ekki auðvelt að horfa á okkur þegar að við Siggi dettum í allan jólamatinn.... slef.....
Hlakka til að sjá þig kveðja Erla