Tukthúsvist??Jónína Margrét Arnórsdóttir

Ég hringdi um daginn út af sektinni minni. Ég spurði hvort ég gæti setið þetta af mér og konan hélt að það væri hægt en hún ætlaði að athuga það betur. Svo hringdi hún í mig og lét mig vita að það væri ekki hægt nema að ég myndi ekki borga sektina, þetta færi í dómsmál og gert yrði fjárnám hjá mér og ekkert fengist upp í það, þá yrði mér stungið í steininn. Ég sem ætlaði að spara mér 50þúsund þar sem ég væri atvinnulaus en svona er lífið :/ Sótti bílinn minn í viðgerð síðasta þriðjudag, fékk Eika til að skutla mér í Brú, fékk far þaðan með Elsu og Óla Bjössa á Akranes, fór með strætó í Mosó og svo sótti Dísa mig þangað og skutlaði mér í Keilufell. Ég var búin að hafa samband við nokkra sem gátu ekki reddað mér með svona stuttum fyrirvara með skutl í bænum, hafði svo samband við Dísu með hálfum hug því hún er stundum svo slæm í bakinu, en auðvitað hljóp hún undir bagga og bjargaði mér JÞað er auðvitað gott að vera komin aftur á bílinn og hann glansaði svoleiðis í gegnum skoðun á fimmtudaginn að sá gamli sem var að skoða brosti allan hringinn. Nú á að fara að taka á því, stefni að því að ná af mér 6 kílóum fyrir jól, er þega búin að missa hálft síðustu viku þrátt fyrir að hafa nær ekkert hreyft mig. Fór í gönguferð í gærkvöldi í mjög fínu veðri en miklum kulda svo nú er ég öll rauðflekkótt í framan. Ætla í körfubolt í kvöld, leikfimi hjá Boggu á þri og fim og skokka og gera Bootcampæfingar mið, fös og lau. Hvíli mig svo á sunnudögum.  bbíb

Athugasemdir

1
Birta Dögg skrifar:
segðu að þú tengist Vitsenglum hehe þá færðu pottþétt að sitja inni og getur örugglega fengið að taka hitt í leiðinni hihi
03. nóvember 2007 klukkan 11:13
2
gunna skrifar:
hehehehehe, nei hún verður rekin úr landi Birta, ertu alveg frá þér að benda henni Jónu Möggu á þetta, hugsaðu þér ef hún tæki mark á þér :)
"Ekki gera eins og Brta segir þér, ekki gera eins og Birta segir þér" knús
08. nóvember 2007 klukkan 11:42
3
Birta Dögg skrifar:
Þú hefur greinilega fengið að sitja inni, hvenær sleppurðu út ?????
17. nóvember 2007 klukkan 02:04
4
gunna frænka skrifar:
úff, já og hún er EKKI í netsambandi þarna inni Birta, það er alvarlegt mál!
20. nóvember 2007 klukkan 15:01
5
Jóna Magga skrifar:
Ég er í útlegð á freðmýrunum fyrir vestan eins og er ;)
Það fer alveg að koma nýtt blogg með nýjustu fréttum af gífurlega viðburðaríkri ævi minni :)
21. nóvember 2007 klukkan 18:27

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...