lífsmarkJónína Margrét Arnórsdóttir

Jú, ég er sprellifandi. Hljóp meira að segja 10 km í fyrsta sinn á æfinni á mánudaginn fyrir viku. Það er líka loksins búið að ganga frá uppgreftrinum fyrir utan húsið mitt og meira að segja að steypa.

Annars er ég núna að bíða eftir stóðréttunum í Vestur-Hópinu. Þær verða á næstu helgi og þá fer ég með Halldóru og co í réttirnar og við drekkum slatta af kakó með Stroh og svo er stórveisla á Hvoli um kvöldið og ball á eftir í skemmunni.

Lífið gengur sinn óvanagang og maður er að reyna að finna sér eitthvað að gera J

bbíb

Athugasemdir

1
Erla skrifar:
Jæja gott að vita að allt gengur vel :)

Og ekki er verra að vita að þú sért lifandi hehe....

Kveðja frá mér og strákunum fjórum
Erla
28. september 2007 klukkan 07:32
2
Villi skrifar:
Vildi bara benda þér á Morgunblaðið í gær, þar eru miklar hetjur á bls 10!
28. september 2007 klukkan 20:15

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...