ups and downs.............Jónína Margrét Arnórsdóttir

Ég skrapp heim í sveitina á laugardaginn og fór aðeins að athuga berjasprettu. Ég tíndi alveg góðan slatta en aðalbláberin verða örugglega orðin fín á næstu helgi eða svo. Á sunnudeginum tókst mér að fá mömmu og pabba með mér Drangsneshringinn. Það var ægilega fallegt veður og gaman að keyra um. Við fórum til Sunnu og fengum kaffi en núna var hún bara með 2 heimabakaðar sortir, hefur sjálfsagt verið miður sín yfir hvað þetta væri lélegt hjá henni. Hún er svo mikil ofurhúsmóðir!!! Á eftir fórum við til Hólmavíkur til Heiðu. Þar vorum við í kvöldmat og svo rölti ég til Elsu og stoppaði aðeins hjá henni. Á mánudagsmorguninn rifum við pabbi okkur upp svo við næðum að fara nýja veginn sem er verið að gera yfir í Arnkötludal áður en vinnuflokkurinn mætti á svæðið. Það var mjög gaman, þeir eru komnir svo ótrúlega langt. Þegar við vorum á leiðinni til baka var einn maður mættur til vinnu. Pabbi stoppaði og spjallaði aðeins við hann og sagði meðal annars að hann hefði fengið leyfi hjá Bessa. Ég var dálitla stund að fatta brandarann. Hélt fyrst að það væri einhver Bessi sem væri að vinna þarna en fattaði svo að það var bessaleyfi sem hann hefði tekið sér J Eftir hádegi fórum við út að Reykhólum með úldin skott fyrir Villa og svo með æðardún á Miðhús. Svo fór ég heim til mín. Þegar ég kom heim var ástandið orðið alvarlegt í skólpmálunum, allt að stíflast aftur. Ég fór í gær og hafði upp á pípara sem kom og athugaði málin. Stuttu seinna var komin grafa í garðinn til að grafa upp til að finna einhverjar leiðslur. Leiðslurnar eru allar á mjög dularfullum stöðum og svo kom líka í ljós vatnsleki. Ég vona að þetta verði ekki sagan endalausa og að skolpmálin komist í lag við fyrsta tækifæri, það er leiðinlegt að þurfa að banka upp á í öðrum húsum og spyrja hvort maður megi fara á klósettið????????

Ein að kafna……………….

Athugasemdir

1
Birta Dögg skrifar:
Akkúrat það sem ég náði ekki að fara en ætlaði og það var að kanna nýjar slóðir(Arnkötludalsleiðina).
Vonandi næst að laga leiðslurnar áður en þú kafnar híhí.
16. ágúst 2007 klukkan 13:29
2
Erla skrifar:
Thad er alltaf jafn gaman hja ther ;) Og er verd ad segja ad eg øfunda thig ekkert minna nuna en i sidustu færslu.
Godur brandari hja honum pabba, eg hefdi ekki fattad hann strax heldur hahaha....
Vona ad skolpmalin fari nu ad lagast hja ther :)

Bestu kvedjur Erla
21. ágúst 2007 klukkan 18:18

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...