SkemmtilegtJónína Margrét Arnórsdóttir

Fór í frábæra gönguferð í fyrrakvöld með 5 skemmtilegum konum. Ferðin var algjört ævintýri því í henni rákumst við á arnarhreiður með 2 ungum og mamman (assan) sveimaði illileg yfir okkur og gargaði hátt. Tæpum klukkutíma síðar kom ég auga á lamb sem var fast í neti sem sett hafði verið á girðingu því þar flæðir þegar er stórstreymt. Aumingja lambið var búið að flækja hornin verulega illa í netinu og líka aðra framlöppina. Ég brunaði strax af stað niður í átt að lambinu en það vildi ekki betur til en svo að ég flaug á hausinn en það varð ekkert alvarlegt. Við náðum svo að losa greyið og héldum svo áfram göngu okkar. Nú var komið að einstigi sem var ekkert sérstaklega þægilegt yfirferðar í rigningunni en allt hafðist þetta þó að lokum. Þegar við vorum nýlagðar af stað í bílnum eftir gönguna flugu upp úr vegkantinum heilar 3 uglur. Gangan sjálf tók um 3 og hálfan tíma en aksturinn í kringum hana hefur tekið um 2 tíma. Við fórum af stað frá Hvammstanga kl 18:15 og ég kom heim 23:45 rennandi blaut en mjög ánægð eftir ferðina. Svona á lífið að vera………………….

Athugasemdir

1
gunna skrifar:
nei gaman að sjá að þú ert vöknuð af "bloggdvala" gott að assan hafði ykkur ekki í kvöldmat hehehehe kveðja af skaganum :)
13. ágúst 2007 klukkan 13:34
2
Erla skrifar:
Rosalega hefur þetta verið viðburðaríkur göngutúr :) Ummmmm . . . . . ég fann næstum því fyrir ferska íslenska loftinu þegar að ég las þetta, oohhh ég sakna þess.
Við vorum sjálf hérna úti í kvöld að kenna drengjunum að hjóla, Gunnar Óli fékk nefnilega hjól frá foreldrum sínum í afmælisgjöf ( 1 degi fyrr ) en loftið er sko ekki eins ferskt hérna, því miður :(
Bestu kveðjur mér og mínum.
13. ágúst 2007 klukkan 20:22

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...