júhú, loksins komin inn afturJónína Margrét Arnórsdóttir

Ég er orðin dálítið pirruð yfir að hafa ekki komist inn á bloggið en nú er það komið í lag. Ég skrifaði heillanga færslu áðan um það sem ég er búin að gera í sumar og það hvarf allt Fýldur
Ég var í 10 daga kórferðalagi í Þýskalandi, var í 10 daga austur á Eiðum að sjá um námskeið fyrir myndlistarkennara á norðurlöndum, fór í bústað með mömmu í tæpa viku, fór í skírn litlu frænku minnar sem fékk nafnið Sóley Birta, fór í brúðkaup hjá Halldóri og Evu Maríu og flaug svo til Færeyja þar sem ég var í 10 daga. Kom heim síðasta föstudag og er búin að vera þar að mestu síðan. Elsa og Óli Bjössi komu í heimsókn á laugardaginn með Ösku og Grímu með sér og gistu eina nótt. Ég fór í matarboð og svo á tónleika á sunnudag og í heimsókn á Hvalshöfða á mánudag þar sem ég tók á móti Villa litla sem var að koma frá Eyjum og var enn í miklu stuði.
bbíb. Djonní

Athugasemdir

1
Villi skrifar:
Já svo dvínaði stuðið heldur daginn eftir!
09. ágúst 2007 klukkan 09:52
2
Erla skrifar:
Velkomin aftur :)

Gaman að sjá hvað er að gerast hjá þér
09. ágúst 2007 klukkan 18:30

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...