Aðeins að stelast í vinnunni...........Jónína Margrét Arnórsdóttir
Er ekki tilvalið að hafa þetta bleikt ár? Ég hef einsett mér að verða há, grönn og spengileg ljóska sem er afar blíð og kvenleg. Hvað passar betur við en að nota bleikt letur?
Þá er enn eitt árið hlaupið frá manni. Nýja árið hefur byrjað nokkuð vel fyrir utan mikið kvef og nokkurn lasleika sem hefur orsakað að ég hef ekkert getað hreyft mig að undanförnu. Ég vonast til að geta farið að bæta úr því seinnipart vikunnar. Ég steig á vigtina í morgun og sá að ég er búin að bæta á mig aftur öðru kílóinu sem ég missti í jólafríinu. Ég hefði ekki átt að vorkenna mér svona mikið og borða allt þetta nammi.
Ég er í Leikflokknum á Hvammstanga og við erum byrjuð að æfa leikritið um hann Emil í Kattholti. Ég held að þetta verði alveg frábær sýning, það er svo skemmtilegt fólk sem tekur þátt að það getur ekki annað verið. ![]()
Ég hlakka svo til á föstudaginn því þá er bóndadagurinn, s.s. fyrsti dagur í Þorra. Þá er alltaf þorramatur í skólanum sem er alveg dásamlega góður. Svo förum við Prjónókonur í bústað, réttara sagt veiðihús, um helgina. Mér finnst þetta frábær hefð að konurnar leyfi bændum sínum að njóta þess að vera húsbændur á sínu heimili og fái að sjá um það og börnin án afskipta þeirra. Þeir halda að vísu nokkrir saman matarveislu að kveldi bóndadags því þeir treysta sér ekki alveg til að vera einir á þessum degi með börnin.
Um daginn fór ég í skemmtilegt afmæli hjá einni af Gluntrasystrunum og eiginmanni hennar. Það var mjög gaman að hitta systurnar og maka þeirra sem og ýmsa aðra gesti sem voru í veislunni hjá Svíunum Bryndísi og Sigurjóni. Mér finnst að nú sé kominn tími á að Gluntrasystur komi í heimsókn til mín á Tangann, maður er oft að bruna til að hitta þær á Skaganum eða í Reykjavík, jafnvel farið alla leið til Svíþjóðar til að hittast.
Ég ætla að lokum að setja inn mynd sem ég fann á netinu sem mér finnst skemmtileg og gef ykkur vefslóðina svo þið getið skoða fleiri eftir þennan listamann.
Ég er ekki viss um að myndin komi, tölvan er með stæla en hér er slóðin á hana http://www.nickfed.com/beachbook.htm
Bestu kveðjur úr brunagaddinum í Húnþingi vestra