LetilífJónína Margrét Arnórsdóttir

Það er nú ekkert smá letilíf á manni hérna. Ég er búin að hvíla mig vel og að sjálfsögðu borða of mikið. Ég fékk fullt af góðum jólagjöfum, 4 geisladiska, hnífapör, 2 bækur ofl. Svo fékk ég eina gagnlega jólagjöf frá Villa bróður, s.s. stjörnuskrúfjárn sem er stærra en hin 2 sem ég átti fyrir. Hann var nefnilega að setja saman fyrir mig náttborð um daginn og fannst mín ekki passa nægilega vel. Reyndar fór ég með pabba í Húsamiðjuna í Borgarnesi 22. des og þar rakst hann á verkfærasett sem hann splæsti á mig sem svona "eldhúsverkfærum".

Ég reyndi að hlaupa úti á aðfangadag, þvílíkt erfiði, ég var að springa eftir 2,5 km. Það er svo langt síðan að maður hefur getað hlaupið úti, veðrið og færðin hefur ekki alveg boðið upp á það nokkuð lengi. Ég ætla samt að reyna að skokka yfir fjörðinn á eftir, vona að ég verði ekki keyrð niður af brjáluðum Dalamönnum sem koma og kaupa allt sem þeir sjá á rýmingarsölunni í Nesverslun. Það voru aðallega Dalamenn sem voru mættir til að versla og fóru mikinn, háreysti og hlátrasköll svo að maður varð bara hálfþreyttur (maður er ekki vanur svona gassagangi í Króksfjarðarnesi Hlæjandi)Ég fór áðan og keypti mér stígvél á 70% afslætti til að eiga í garðvinnuna næsta sumar. Svo rakst ég á nokkrar hnotur af einspinnu sem ég keypti og ætla að gefa einni konu gegn því að hún geri vettlinga á mig úr hluta af garninu ;)

Á morgun fer ég aftur heim. Ég ætla að taka þétt í hinu árlega Staðarskálamóti í körfubolta. Tók þátt í fyrra og fannst það mjög fyndið, kunni engar reglur og dómararnir voru hættir að dæma á mig skref ofl. hristu bara hausinn og hlógu. Nú kann ég aðeins meira en ætla bara að vera varaskeifa til að hvíla aðeins þær sem eru að springa úr mæði (eru s.s. ekkí í eins góðu formi og ég Hlæjandi) Svo á eftir að sjá hvernig áramótin verða hjá manni þetta árið, best að vera ekki að skipuleggja of langt fram í tímann !!!
Bið að heilsa í bili með hátíðarkveðjum Koss

Athugasemdir

1
gunna skrifar:
hóst hóst hóst ! ætli eitthvað af hávaðanum og hlátrasköllunum sem fylgdu Dalamönnunum sem komu yfir fjörð geti tengst mér eitthvað ? :) fannst einhvernveginn þetta hljóma dálítið "Bíbíarlegt" við erum víst svona systurnar hehehehe.

Jæja hvernig fór ? komstu yfir ?
Kær kveðja af skaganum til þín vinan
28. desember 2006 klukkan 06:36
2
Jóna Magga skrifar:
Reyndar var Bíbí þarna, rétt hjá þér ;)
Ég hætti við að reyna að hlaupa, ég fékk letikast :(
Bastu kveðjur á Skagann
28. desember 2006 klukkan 17:22

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...