Mikill léttirJónína Margrét Arnórsdóttir
Það er töluverður léttir að losna við 10 kíló skal ég segja ykkur og minnka um 2 númer í fatastærð síðan í ágúst ![]()
Ég var í bænum um helgina að versla mér spariföt og vart svo hissa og glöð að þurfa númeri minna en þegar ég var að máta í október.
Annars var líka mjög gaman um helgina að hitta allt þetta sekmmtilega fólk. Gisti hjá Eygló og Dísu og svo fórum við Eygló í heimsókn til Birtu. Ég hitti nokkra góða á búðarölti, t.d. Villa og Júllu. Svo fór ég í hádegisverðarboð hjá Öddu og Árna og þar voru líka Gurrý, Matra og Hlynur og svo auðvitað öll börnin. Ég held ég hafi fengið þá bestu humarsúpu sem ég hef smakkað (namm, namm) Á Skaganum hitti ég svo Grím, Sigrúnu, Arnór Má og Guðmund Þór, Sissó reyndi að vera hress þegar ég rak inn nefið þar og svo fór líka til Rögnu og Guðmundar þar sem ég hitti Dagbjörtu og Daða.
Nú ætla ég að vera dugleg að blogga í jólafríinu ef einhver nennir að fylgjast með !!
bbíb
Athugasemdir
Þú ert svo dugleg og til hamingju með frábæran árangur, ég sá sko mikinn mun og það lá við að ég yrði að setja upp gleraugun til þess að sjá þig......Gleðileg jól dúllan mín....