Hélduđ ţiđ ađ ég vćri dauđ?????????Jónína Margrét Arnórsdóttir

Jóaljósin hjá mér

Mér datt í hug að setja inn mynd af húsinu mínu, ég er loksins búin að skreyta almennilega úti fyrir jólin en Villi bróðir er enn að vinna í því að setja upp fyrir mig seríur í gluggana inni. Annars er bara allt að verða tilbúið, ég bíð bara eftir að klukkan slái 6 á Aðfangadag.     NOT
Maður er samt að reyna að koma sér í jólastuð, var að baka með 4. bekk áðan, helmingurinn brann og fór beint í ruslið. Aumingja börnin að hafa svona glataðan heimilisfræðikennara Óákveðinn
Ég fer til Hólmavíkur á morgun til að fara á jólahlaðborð með Elsu og co. Á sunnudagskvöldið er svo aðventukvöld á Melstað ef einhver vill koma og heyra mig syngja unaðsfagurri röddu. Svo er stefnan tekin á að skreppa til höfuðborgarinnar þann 16. des og kaupa jólafötin.
Blessi ykkur í bili

Athugasemdir

1
Daníel skrifar:
Vá, þetta er bara næstum því eins flott og húsið okkar.
07. desember 2006 klukkan 23:50
2
Birta dögg skrifar:
ég bíð bara eftir að hitta þig, þú kemur bara 16. og syngur fyrir mig eina með þinni undurfögru röddu híhíhí
09. desember 2006 klukkan 05:46
3
gunna skrifar:
Dauð ?

Guði sé lof að allt er í lagi með þig :)
09. desember 2006 klukkan 18:46
4
Gulla skrifar:
Ég sé aldrei neina mynd :o/ Dálítið svekkt... Vona að aðventukvöldið hafi verið vel heppnað!
11. desember 2006 klukkan 04:02

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...