Erla litla þrítugJónína Margrét Arnórsdóttir

Þá er Erla loksins orðin þrítug. Ég man ótrúlega vel eftir þegar hún fæddist enda var ég orðin rígfullorðin, 7 ára. Helgina áður skruppum við, ég,pabbi og Grímur, til Hólmavíkur á Volvo yfir Tunguheiði til að fá súrmat hjá ömmu. Í vikunni fórum við á Miðjanes að kaupa bók til að gefa Halla í afmælisgjöf og tilkynnti ég stolt að ég væri búin að eignast litla systur. Svo fórum við í sextugsafmælið hans Halla og þar voru margir að óska manni til hamingju. Stuttu seinna greip mig heljartökum afbrýðissemi sem ég er alveg nýbúin að losa mig við gagnvart Erlu greyinu.

Við stórfjölskyldan erum nú stödd hjá Erlu og co í Vejle. Mamma bakaði kökur og það var kaffiveisla í dag. Við erum annars búin að vera nokkuð dugleg að versla, ég hugsa að ég fari á hausinn Óákveðinn Þetta er búið að vera mjög fínt hérna og við komumst auðveldlega fyrir í villunni hér á Fousbjergvej 16. Á morgun höldum við svo heim á leið í kuldann.
bbíb

Athugasemdir

1
gunna skrifar:
Til hamingju með hana systir þína dúllan mín ;)
Já nú er frekar kalt, en betra en undanfarið, en það er SNJÓR á Akranesi ;) og þá meina ég´SNJÓR !

Góða heimferð
20. nóvember 2006 klukkan 02:45
2
dagbjört skrifar:
til hamingju með litlu systur ;) í mínum huga er Erla reyndar alltaf svo STÓR :D
Ég var að skoða um daginn eina af dagbókunum frægu sem pabbi hefur skrifað í gegnum árin, var að skoða 1986, hahaha.... Þá ert þú sko ein af fjölskyldunni (auðvitað) og hefur greinilega lent "nokkrum" sinnum í að passa mig, fórst með mér út að gera snjókarl, með mig í sund og ég veit ekki hvað, ekki slæmt að hafa svona góða stóra frænku á heimilinu :) Langaði bara að deila þessu með þér.. og öllum hinum sem skoða þetta ;)
23. nóvember 2006 klukkan 00:27

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...