Stundum er svo lítiđ ađ segjaJónína Margrét Arnórsdóttir

Mér finnst einhvernveginn að maður hafi svo lítið að segja. Reyndar náði ég þeim merka áfanga síðasta laugardag að hlaupa 5 kílómetrana. Hélt að ég myndi drepast þegar ég var rúmlega hálfnuð. Sem betur fer var ég með einkaþjálfarann með mér og hún sagði að ég gæti þetta víst þegar ég ætlaði að hætta. Svo hljóp ég þetta á 35 mínútum sem er víst bara býsna góður tími miðað við aldur og fyrri störf (reyndar frekar þyngdina). Ætla að fara og hlaupa á eftir einhvern spöl og svo að reyna aftur að fara 5 á föstudaginn.

Mamma og pabbi komu til mín á föstudagskvöldið og voru fram á laugardagskvöld. Það var gott að fá þau í heimsókn. Pabbi lagaði hurðarhúna, setti upp eitt ljós og hjálpaði mér að setja vetrardekkin upp á  háaloft. Ég fór með mömmu í föndurbúð og pabba að skoða fornbíla og dráttarvélar. Svo fórum við auðvitað aðeins í Kaupfélagið eins og sönnum sveitamönnum sæmir !!

Á sunnudaginn var ég bara í afslöppun, fór í heita pottinn og lagði mig svo á eftir. Fór svo í körfubolta um kvöldið. Það var mjög gaman, sérstaklega að vera í sæmilegu formi og geta hlaupið án þess að vera að kafna. Skömmustulegur

Nú er ég búin að ganga frá einkunnagjöf til nemenda minna svo ég get verið salla róleg þessi annaskiptin. Þetta er óttalegt letilíf hjá manni í vinnunni núna, ég hef varla nokkuð að gera núna miðað við síðustu ár. Spurning hvort maður ætti ekki bara að skreppa til útlanda í langt frí.

Minnir mig á það að ég er að fara eftir rúmar 2 vikur í heimsókn til Erlu og fjölskyldu í Vejle. Hlakka mikið til að hitta þau öll. Kannksi ég ætti að fá mér alvöru ökuskírteini áður en ég fer ef löggan skyldi stoppa mig á rúntinum þar Glottandi

Nú er nóg komið í bili, bæææææææææææææ

Athugasemdir

1
Gunna skrifar:
Djöf..... ertu dugleg Jóna Magga !
Maður verður bara orðlaus, gott há þér !
01. nóvember 2006 klukkan 03:10
2
Birta Dögg skrifar:
Taktu mig til fyrirmyndar og gerðu ekki neitt hehehehehehheee þoli ekki svona duglegt fólk híhíhí
01. nóvember 2006 klukkan 18:32
3
esta skrifar:
vá hvað þú ert dugleg..... Ég sem fer ekki einu sinni reglulega út með hundinn, hleypi hundinum bara út í garð og kalla svo bara á hundinn inn aftur. úff verð bara þreytt við tilhugsunina að fara út að labba
02. nóvember 2006 klukkan 23:42
4
Hlíf Hrólfsdóttir skrifar:
Heyrðu. þegar það er svo að maður fylgist með fólki í gegnum tölvuna, þá verður maður líka að láta
vita að maður sé að fylgjast með. Afhverju varstu að setja vetrardekkin upp á loft, er
ekki að koma vetur hjá þér eða hvað. Og Jóna Magga. Endilega sendu mér póst svo ég
sjái emilinn þinn. Kveðja. Hlíf
03. nóvember 2006 klukkan 02:40
5
Jóna Magga skrifar:
Ég ætlaði auðvitað að segja að hann hefði sett sumardekkin upp á loft, maður er stundum svo klikkaður íi kollinum að það hálfa væri nóg!!
Ég er náttúrulega að springa úr stolti yfir hve vel gengur að hlaupa!!
03. nóvember 2006 klukkan 03:15
6
Erla skrifar:
va svo dugleg ;) vildi oska ad eg væri svona dugleg lika. Og spennan fyrir komu ykkar er sko ekkert litil herna
kv. Litla systir
03. nóvember 2006 klukkan 21:24
7
Björk skrifar:
vá þú ert ekkert smá dugleg, ég gæti ekki hlaupið 1/2 km, gangi þér bara rosa vel og góða skemmtun í danmörku.
Kv Björk
06. nóvember 2006 klukkan 04:35

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...