gjúgg, gjúggJónína Margrét Arnórsdóttir
jólamánuðurinn ógurlegi þegar sumir missa sig........ NánarVikan leið hratt.............Jónína Margrét Arnórsdóttir
Jæja ágætu og dyggu lesendurÞá er rétt að segja aðeins frá hvað á dagana hefur drifið. Ég vann auðvitað eins og vitleysingur í sumar og notaði svo nánst öll frí til að ferðast, þá aðallega við Húnaflóann.
Ég fór á Hamingjudaga á Hólmavík sem vor mis hamingjuríkir sökum veðurs en hitti þar fullt af fólki sem ég hef ekki hitt mjög lengi og það er alltaf skemmtilegt.
Ég fór líka á Bryggjuhátíð á Drangsnesi sem var vel heppnuð, sér í lagi vegna mikillar veðurblíðu og svo hitti maður svo margt skemmtilegt fólk.
Á Hvammstanga var svo Unglist og það litla sem ég gat fylgst með henni var frábært, gott veður og mikið af skemmtilegu fólki.
Strax eftir Verslunarmannahelgi fór íg í 8 daga sumarfrí sem ég eyddi í Reykjafirði á norður-Ströndum. Þetta var alveg dásamlegt líf, farið í nokkrar gönguferðir og á hverjum degi í heita sundlaugina. Ekki spillti fyrir hversu skemmtilegt fólk var með í ferðinni.
Í ágúst skipti ég svo um vinnu og hóf störf á Skólabúðunum á Reykjum við kennslu.
Ég lét mig svo ekki vanta á Reykhóladaginn sem var haldinn í leiðindaveðri en var vel heppnaður að öðru leiti.
Ég dreif mig svo heim í smalamennsku 20. september og gladdi bræður mína með stjórnsemi minni og skipulagshæfileikum ;)
Annars er allt við það sama hjá mér og ég hef það bara fínt.
bbíb
Búið ykkur undir hið ótúlegaJónína Margrét Arnórsdóttir
Komið þið sæl og blessuð!Já, undrin gerast enn. Ég er sprelllifandi og stefni að alvöru bloggfærslu í vikunni (aðallega vegna þess að Birta var að kvarta við mig).
bbíb. Jóna Magga
Gríðarlega er ég vinnusöm.............Jónína Margrét Arnórsdóttir
Datt í hug að láta vita að ég er á lífi. Ég er að vinna mikið og ekki með tölvu heima svo bloggið er nokkuð stopult hjá mér.Það er allt sæmilegt að frétta, ekki annað hægt í svona góðu veðri og maður búinn að fara í heita pottinn og svona og ná sér í nokkrar freknur.
Ég missti af hátíðahöldum í gær þegar haldið var upp á 10 ára afmæli Húnaþings vestra. Ég sleppti líka að fara í kvennahlaupið þetta árið því ég er svo slæm í hnjánum (ellimerki???).
Nú er bara að þrauka sumarið og fara svo í aðgerð í haust og vona að maður verði eins og nýr og geti stefnt að maraþoninu á næsta ári í staðinn :)
Nýji bíllinn minn er æði, reyndar svo góður að ég var tekin fyrir of hraðan akstur um daginn :(
En nú stefni ég að því að verða rík og fyrsta aðgerðin í þá átt er að keyra aldrei yfir 90 km hraða í Húnavatnssýslunum :)
Svo ætla ég að reyna að setja niður kartöflurnar í kvöld ef það rignir ekki eldi og brennisteini. Það var svo frábært að það kom maður og bauðst til að stinga upp fyrir mig kartöflugarðinn um daginn og gerði hann svona líka flottann.
En nú verð ég að fara að vinna, það þýðir ekkert að hanga í tölvunni í vinnunni.
bbíb
Langþráðar fréttirJónína Margrét Arnórsdóttir
Ég veit að sumir hafa verið að vona að ég væri búin að gifta mig, væri ólétt og blablabla.En nei, fréttirnar eru sem sagt að ég var að vinna gull í hlaupum, nánar tiltekið í Kormákshlaupinu. Vel af sér vikið fyrir svona gamla og stirða kerlingu.
Ó, svo keypti ég mér flunkunýjan bíl

bbíb
spennandi fréttir ;)Jónína Margrét Arnórsdóttir
Ég verð að láta ykkur vita að það er eitthvað mjög spennandi á gangi hjá mér (úlala). Það kemur betur í ljós á næstu dögum ;)
bbíb
Söngvarakeppnin búin !!!Jónína Margrét Arnórsdóttir
Jæja, þá er söngvarakeppnin búin. Mér fannst þetta mjög skemmtileg keppni og lang flestir stóðu sig vel þó að auðvitað klikki alltaf eitthvað. Ég til dæmis ákvað að syngja aðeins á vitlausum stað ofan í hana Tótu. Tóta kom sem sagt inn í atriðið fyrir Unni (raddlausu) systur sína á föstudaginn þannig að æfingatíminn okkar var mjög stuttur en hún stóð sig eins og hetja. Við ákváðum líka að breyta búningunum okkar á laugardeginum því við ætluðum að vera í öllu svörtu en svo var bakgrunnurinn allt í einu orðinn svartur og þá hefðum við horfið. (Ekki sennilegt með mig reyndar, djöfull er maður alltaf feitur á myndum
). Úrslitin komu mörgum á óvart en ég held samt að það hafi verið mjög sniðugt að fá einhverja ókunnuga í dómnefndina sem komu þarna inn alveg hlutlausir (þó sumir vilji meina að Gummi á Ósi hafi verið búinn að segja þeim til
).
alla vega held ég að þeir sem fengu verðlaun hafi verið mjög ánægðir. Guðrún Ósk enn í öðru sætinu, eru þetta álög????
Besti búningur: Brynjar (hann var í ljótari fötum en ég)
Besta sviðsframkoma: Guðrún Ósk og Sveinbjörg (og allir strákarnir) Mjög skemmtilegt atriði
3. sætið: Hulda Signý - Strax í dag
2. sætið: Guðrún Ósk og Sveinbjörg - Fljúgðu hærra
1. sætið: Elín, Daði og Solla - Förum saman í ærlegt sumarfrí
Mér fannst reyndar verst að Elín Ósk skyldi ekki fá verðlaun, hún var rosalega góð með uxahryggjarhalanegrablómkálssveppasúpuna en svona er lífið, það eru ekki allir sigurvegarar. Það er samt svo gaman að taka þátt þó stemningin hafi verið í minna lagi þetta árið að einhverjum ástæðum.
Annars er ég búin að vera að vinna mikið og mikil vinna framundan, sem er mjög gott, þá hlýtur maður að vaða í seðlum (NOT)
Nenni ekki að skrifa meira í bili, bææææ.........
Söngvarakeppnin á morgun ;)Jónína Margrét Arnórsdóttir
Ég er farin að hlakka mikið til, þetta er svo skemmtilegt. Ég set hér inn textann svo þið getið æft ykkur að syngja með (það mæta nefnilega svo margir af mínum vinum og ættingjum).Grjónó group kemur til með að skemmta sér vel, svo mikið er víst ;)
Berum út dívananaÞað er þokkalegt veður og vindurinn blæs út á haf,vonandi hangir hann þurr eitthvað fram yfir helgi.En ef hann skyldi nú rigna og allt myndi fara í kafþá eigum við sjóstakka, sundföt og reknetabelgi.Nú ríður á að drífa sigrakleiðis framúr, í fötin og beint inn í dal… Berum út dívanana….berjum í brestina, tjöldum og tökum svo lagið.Berum út dívanana,kommóðu, sænguföt, ísbox og föðurlandið. Allt virðist klappað og klárt og heimamenn hópast nú að,hústjöldin brosa við eigendum sínum á melgrasflötinni.Ekkert virðist til trafala ef allir eru sammála um það að æsa sig hvork’ út af kulda né trekki eðadanshljómsveitinni. Berum út dívanana….berjum í brestina, tjöldum og tökum svo lagið (tra la lala)Berum út dívanana,hermannafermingarbeddum við reddum,dívan með gormum og tekklöppum nöppum, berum út dívanana, dívanana. Nú ríður á að drífa sigrakleiðis framúr, í fötin og beint inn í dal… Berum út dívanana….berjum í brestina, tjöldum og tökum svo lagið (ekkert hangs OK)Berum út dívanana,hermannafermingarbeddum við reddum,dívan með gormum og tekklöppum nöppum, berum út dívanana, dívanana. bbíb
Jónína Margrét Arnórsdóttir
Gaman að sjá að það er að kíkja fólk inn á síðuna hjá manni þrátt fyrir að maður sé ekki að standa sig vel í þessu bloggi. Sumir upplifa þetta sem njósnir en maður á auðvitað ekki að setja á netið það sem maður vill hafa fyrir sig.Ég er að fara til Reykjavíkur á eftir og ætla í bíó í kvöld að sjá myndina Heiðin sem var tekin upp í sveitinni heima. Vona að hún sé ekki of niðurdrepandi, alla vegana er sveitin á mikilli niðurleið
Á morgun flýg ég svo til Danmerkur og fer í heimsókn til Erlu og co. Hún sendi mér sms áðan og var að fara að versla í matinn og vildi fá að vita hvort það væri e-ð sérstakt sem mig langaði í. Ég sagði auðvitað Tuborg og leverpostej
Veðurspáin í Vinding er ekkert spes fyrir þessa daga sem ég verð en þó betri en hér heima (ekki bylur).
Kannski að maður fari á flakk og skoði e-ð í kringum Vejle ef hægt er.
bbíb
Djonni
ps. Ég missi því miður af því þegar Johnny and the rest spila á Síróp, þeir eru magnaðir
i'm the motherfucker princessJónína Margrét Arnórsdóttir
Datt ekki neinn titill í hug svo ég notaði textabút úr lagi sem ég er að hlusta áÉg fór á fyrstu æfingu fyrir söngvarakeppnina á laugardaginn. Fékk sms eftir hálftólf á föstudagskvöldið um að það væri æfing á laugardag frá 13:30 til 16:00 og fannst þetta mjög seint að láta vita. En við (ég, Eva og Unnur) létum bara vaða að syngja þó við værum ekkert búnar að æfa okkur. Nú bíður maður bara spenntur eftir 12. apríl þegar keppnin verður
Berum út dívanana
hermannafermingarbeddum við reddum
dívan með gormum og tekklöppum nöppum.........
bbíb